Selfoss vann 1-2 sigur á KV á Auto Park vellinum í Vesturbæ í dag en um var að ræða leik í 11 umferð Lengjudeildar.
Gary Martin skoraði sigurmark Selfoss þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af leiknum.
Eftir slæmt tap á heimavelli gegn Vestra í síðustu umferð er Selfoss aftur komið á sigurbraut og á topp deildarinnar um stund.
Sigurmark Gary má sjá hér að neðan.