Aktivistinn Edda Falak þurfti að gjalda uppruna síns í æsku. Hún er hálflíbönsk og var hann strítt á því að hún þótti framandi í útliti og bar erlent millinafn. „Þú hlýtur að vera hryðjuverkamaður,“ var meðal þess sem börnin sögðu við Eddu. Hún lærði snemma að standa með sjálfri sér, hefur sterka réttlætiskennd og lætur gagnrýni ekki á sig fá.
Edda var í viðtali í þættinum „Fram og til baka“ á Rás 2, en umsjónarmaður er Felix Bergsson. Vefur RÚV greinir frá efni þáttarins.
Í þættinum kemur fram að Edda missti móður sína er hún var á fermingaraldri. Segir að móðurmissirinn hafi kennt Eddu margt og mótað hana. „Ég held ég hafi fengið sjálfstæðið mitt og lært að stóla á sjálfa mig. Ég held að líf mitt hafi breyst töluvert og ég varð miklu sjálfstæðari og ákveðnari, bara, heyrðu ég þarf einhvern veginn að passa upp á mig,“ segir hún.
Edda var búsett í sex ár í Danmörku en flutti til Íslands fyrir einu og hálfu ári. Skömmu eftir heimkomuna til Íslands varð Edda landsþekkt vegna baráttu sinnar gegn kynbundnu ofbeldi og fræg hlaðvarpsviðtöl við þolendur.
Mjög margir vilja komast í viðtal við Eddu og segist hún fá flóð skilaboða frá fólki sem gengið hefur í gegnum skelfilega reynslu. Stundum tekur þetta á. „Einhvern tíma missir maður líka hausinn. Það er endalaust áreiti og endalaust fólk að segja mér frá sínu tráma.“
Edda greinir einnig frá neikvæðu áreiti en margir tala um hana með hatursfullum hætti í kommentakerfum og senda henni neikvæð skilaboð. Hún lætur þetta ekki á sig fá. „Áreiti í einkaskilaboðum, mér er eiginlega alveg sama um trúða sem eru þar og ég skoða aldrei kommentakerfið,“ segir Edda.