fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Fréttir

Tímamótadómur í Bandaríkjunum – Réttur kvenna til þungunarrofs fallinn úr gildi

Rafn Ágúst Ragnarsson
Föstudaginn 24. júní 2022 14:37

Mynd/Susan Walsh/AP Photo

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur Bandaríkjanna sneri í dag við fordæmi sínu sem tryggði bandarískum konum rétt til þungunarrofs. Löggjöfin hefur verið í gildi í næstum 50 ár. Nú er leiðin greið fyrir íhaldsamar fylkisstjórnir að banna þungunarrof í flestum tilfellum, sem sum munu eflaust gera.

Þetta er ein áhrifaríkasta niðurstaða hæstaréttarins síðustu áratuga. Talið er að stjórnir minnst 25 fylkja hafi í huga að setja ný lög sem myndu gera það að verkum að aðgengi kvenna að þungunarofi skerðist mikið. Sums staðar í Bandaríkjunum mun þungunarrof líklega vera bannað í öllum tilfellum, meira að segja þegar um nauðgun eða sifjaspell ræðir.

Bönn taka gildi á næstu dögum

Flest þessara fylkja eru í suðurhluta landsins. Texas, Louisiana og Mississippi eru þrjú af þrettán ríkjum sem eru með svokölluð „trigger“ bönn sem voru undirbúin fyrir og munu taka gildi á næstu dögum eða vikum.

Þrátt fyrir það að þungunarof sé mjög umdeilt málefni í Bandaríkjunum sýnir könnun sem Gallup tók fyrr í mánuðinum að 55% Bandaríkjamanna styðji rétt kvenna til þungunarrofs.

Efni meirihlutaálitsins var lekið í fjölmiðla í vor þannig þessar fréttir koma mörgum eflaust ekki á óvart.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hefur áhyggjur af launahækkunum kennara

Hefur áhyggjur af launahækkunum kennara
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Skatturinn vill að þú bregðist við strax – Ekki er allt sem sýnist

Skatturinn vill að þú bregðist við strax – Ekki er allt sem sýnist
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ferðamaður á Íslandi fékk afar dularfulla heimsókn – „Hefur einhver upplifað eitthvað svona?“

Ferðamaður á Íslandi fékk afar dularfulla heimsókn – „Hefur einhver upplifað eitthvað svona?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Segir ámælisvert að ekki sé búið að banna umskurð drengja á Íslandi

Segir ámælisvert að ekki sé búið að banna umskurð drengja á Íslandi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bjarni Már segir að Íslendingar þurfi að stofna her og leyniþjónustu

Bjarni Már segir að Íslendingar þurfi að stofna her og leyniþjónustu