The Guardian segir að niðurstaða rannsóknar á rúmlega 200.000 breskum karlmönnum, sem eru skráðir í UK Biobank, bendi til að 1 af hverjum 500 körlum sé með auka kynlitning, annað hvort X eða Y, en þetta eru helmingi fleiri en fyrri rannsóknir hafa bent til. Talið er líklegt að aðeins lítill hluti viðkomandi viti af þessu.
Flestir karlmenn eru með einn X eða Y litning en sumir fæðast með XXY eða XYY en það veldur aukinni hættu á margvíslegum heilsufarsvandamálum, allt frá sykursýki 2 til stíflaðra æða og lungnasjúkdóma.
Ken Ong, prófessor og einn höfunda rannsóknarinnar, sagði að það hafi komið rannsakendum mjög á óvart hversu margir karlar eru með auka kynlitning.
Vísindamennirnir rannsökuðu erfðaefni 207.067 evrópskra karla á aldrinum 40 til 70 ára. 231 var með auka X-litning og 143 með auka Y-litning. Þeir sem eru skráðir hjá UK Biobank eru almennt heilbrigðari en aðrir en út frá niðurstöðum rannsóknarinnar á erfðaefni mannanna komust vísindamennirnir að þeirri niðurstöðu að 1 af hverjum 500 sé með auka kynlitning.
Niðurstöðurnar hafa verið birtar í vísindaritinu Genetics in Medicine.
Karlar, sem eru með auka X-litning, greinast oft með hann þegar það hefur áhrif á kynþroska þeirra og frjósemi. Hann hefur einnig verið tengdur við meiri líkamsfitu, hugræn vandamál og persónuleikatruflanir.
Rannsóknin leiddi í ljós að karlar með XXY eru með töluvert minna magn testósteróns en þeir sem eru með XY. Það eru þrisvar sinnum meiri líkur á kynþroska þeirra seinki og fjórum sinnum meiri líkur á að þeir eignist ekki börn. XYY karlar hafa tilhneigingu til að vera hávaxnir á barnsaldri og á fullorðinsaldri en frjósemi þeirra virðist vera eðlileg.