fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Fréttir

Barðavogsmálið: Vinir Gylfa Bergmanns harmi slegnir eftir lát hans – ,,Ekki maður sem ýtti undir átök“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 9. júní 2022 16:05

Gylfi Bergmann Heimisson. Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinir Gylfa Bergmanns Heimissonar sem lét lífið á voveiflegan hátt við heimili sitt í Barðavogi, laugardagskvöldið 4. júní síðastliðinn, telja útilokað að hann hafi getað átt einhver upptök að átökum við Magnús Aron Magnússon, manninn sem grunaður er um að hafa orðið honum að bana.

„Ég get skrifað nafnið mitt undir það allan daginn að hann myndi aldrei gera slíkt. Þegar ég sá frétt um þetta hugsaði ég að þetta hefði getað verið ég, hver sem er hefði getað lent í þessu. Þessi strákur var svo ljúfur og góður, maður man eftir honum með börnunum sínum í götunni heima,“ segir Þorvarður Goði Valdimarsson, fyrrverandi nágranni Gylfa frá þeim tíma er hann bjó í Hafnarfirði. Bjuggu þeir í húsum hvort á móti öðru á þessum tíma en eru báðir fluttir úr Hafnarfirði.

„Það eina í þessa átt sem ég gæti hugsanlega séð fyrir mér væri að hann hefði séð þennan strák vera að gera eitthvað sem hann átti ekki að gera og hafi beðið hann um að hætta því,“ segir Þorvarður, sem skrifaði þessi minningarorð um sinn gamla vin á Facebook:

„Skerandi sársauki að lesa að Gylfi Bergmann hafi verið myrtur á svona tilgangslausan og óskiljanlegan hátt. Ég hef ekki hitt ljúfari mann, kynntist honum lauslega þegar hann og fjölskylda hans bjuggu á Suðurgötunni í Hafnarfirði. Þá var hann að smíða fyrsta Gastro Truck bílinn, þvílíkur dugnaður og metnaður sem einkenndi hann, alltaf stutt í brosið og vinalegt viðmót. Ég vil votta börnum hans og fjölskyldu mínar innilegustu samúðarkveðjur“

Þorvarður segir að Gylfi hafi verið draumanágranni. „Þetta var bara gulldrengur. Þú vilt hafa svona mann í götunni þinni. Hann er að smíða, hann er að byggja, hann er framtakssamur og þessi próaktívi kraftur tekur samfélagið á hærri stað,“ segir Þorvarður. Að hans mati er Gylfi dæmi um mann sem lyftir upp sínu nærsamfélagi og því sé mikill missir af honum.

„Bara rangur maður á röngum stað“

„Hann var bara mesti ljúflingur sem fyrirfinnst,“ segir vinkona Gylfa sem vill ekki láta nafn síns getið. „Ég veit ekkert um þetta mál eða þennan mann sem bjó þarna. Ég hef ekki komið í þetta hús og ég þekki Gylfa bara í gegnum veitingabransann. En ég get alveg staðfest að Gylfi er ekki maður sem ýtir undir átök. Hins vegar hefur maður heyrt alls konar orðróm um þennan aðila sem þarna var að verki. Ég þekki ekki til þessa einstaklings en veit um tvær fjölskyldur sem hafa flúið hverfið vegna hans.“

Hvorugur viðmælenda DV þekkir til  Magnúsar Arons nema af afspurn. Þau hafa hins vegar heyrt og lesið um ofbeldisfulla hegðun hans og sögusagnir þess efnis að hann hafi þurft á þjónustu geðheilbrigðiskerfisins að halda sem hann hafi ekki fengið. Slíkt hefur ekki fengist staðfest en nágrannar sem DV hefur rætt við telja að Magnús Aron hefði ekki átt að búa í venjulega íbúðahverfi heldur hefði þurft á sértæku úrræði að halda.

Sjá einnig: Gylfi Bergmann sá sem lést í árásinni við Barðavog

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Afbrotafræðingur tjáir sig um tálbeituaðgerðir í ljósi manndrápsmálsins – „Villta vestrið leysir ekki málin og notkun tálbeitu er varasöm“

Afbrotafræðingur tjáir sig um tálbeituaðgerðir í ljósi manndrápsmálsins – „Villta vestrið leysir ekki málin og notkun tálbeitu er varasöm“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sofia fannst látin – Meintur gerandi hennar lést áður en til ákæru kom

Sofia fannst látin – Meintur gerandi hennar lést áður en til ákæru kom
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Enn ein svikasíðan í skjóli á Kalkofnsveginum – Logið upp á fræga leikkonu

Enn ein svikasíðan í skjóli á Kalkofnsveginum – Logið upp á fræga leikkonu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Elliði tjáir sig um manndrápsmálið – „Eftir voveifilegan atburð getur samfélagið fundið leiðir til að standa saman“

Elliði tjáir sig um manndrápsmálið – „Eftir voveifilegan atburð getur samfélagið fundið leiðir til að standa saman“
Fréttir
Í gær

Alfreð Erling sýknaður – Gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun

Alfreð Erling sýknaður – Gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun
Fréttir
Í gær

Guðni segir að Sigurður Ingi þurfi að herða sig: „Ekkert markvert hefur heyrst frá formanni flokksins“

Guðni segir að Sigurður Ingi þurfi að herða sig: „Ekkert markvert hefur heyrst frá formanni flokksins“