Sá sem lést í árásinni hörmulega við Barðavog laugardaginn 4. júní síðastliðinn hét Gylfi Bergmann Heimisson. Greint var frá andláti hans í Fréttablaðinu í dag.
Gylfi var fæddur árið 1975 en hann lætur eftir sig fjögur börn á aldrinum tveggja til 24 ára. Eins og fram hefur komið bjó hann í kjallara hússins við Barðavog en hann festi kaup á íbúðinni í mars 2021.
Gylfi var þekktur í veitingageiranum fyrir aðkomu sína að hinum vinsælu veitingastöðum Gastro Truck en tveir vagnar staðarins voru starfrækir í Mathöllinni Höfða og Mathöllinni Granda auk þess sem gerður var út vagn í veisluþjónustu.