fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Pressan

Stærsti banki Bandaríkjanna varar við – Fjármálafellibylur í aðsigi

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 7. júní 2022 07:58

Forstjóri JP Morgan varar við stöðunni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Dimon, forstjóri JP Morgan Chase, sem er stærsti banki Bandaríkjanna, segir að sannkallaður fellibylur sé í aðsigi á fjármálamörkuðunum. Dimon, sem hefur verið forstjóri bankans síðan 2005, hafði áður sagt að óveðursský væru yfir efnahag heimsins. En nú hefur hann bætt heldur betur í spá sína.

CNBC skýrir frá þessu. Fram kemur að Dimon hafi sagt þetta á fundi með fjárfestum í New York í síðustu viku.

„Þið vitið að ég sagði að óveðursský væru á lofti. Ég vil breyta því. Þetta er fellibylur,“ sagði hann og bætti við að hann vissi ekki hvort þetta væri stór eða lítill fellibylur.

Hann sagði fjárfestunum að þeir skyldu undirbúa sig fyrir þetta, það muni JP Morgan gera.

Eitt af því sem hann hefur áhyggjur af eru sveiflur á markaði vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Olíuverð hefur meðal annars hækkað mikið og mun væntanlega hækka enn meira. Það veldur síðan hækkunum á mörgum vörum, þar á meðal matvörum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt