Yfir 70.000 ísraelskir öfgamenn marséruðu í og um Gömlu borg Jerúsalem í gærkvöldi til að fagna Jersúsalemdagsins, margir þeirra sungu rasísk lög og slógust við Palestínumenn og lögregluna. Times of Israel greinir frá þessu.
Jerúsalemdagurinn er ísraelskur hátíðardagur til að fagna innrás og landnámi ísraelsmanna á Austur-Jerúsalem í sex daga stríðinu árið 1967. Hátíðinni er hins vegar aðallega fagnað af öfga hægrimönnum og strangtrúuðum Gyðingum.
Margir mótmælendurnir sungu hefðbundin lög til að hylla helgu borgina. En ekki voru allir á sama máli og í skrúðgöngunni æptu hundruð mótmælanda „Megi þorpin ykkar brenna“ og „Arabar deyi.“
„Shuafat brennur!“ öskruðu aðrir ísraelskir mótmælendur og áttu þar við Múhammeð Abú Khdeir, austur jerúsalemskur, palestínskur unglingur sem brenndur var lifandi af gyðingahryðjuverkamönnum árið 2014.
Átök milli hægrivængs ísraelsbúa og Palestínumanna áttu sér stað allan daginn. Að minnsta kosti 60 voru handtekin fyrir ofbeldi, samkvæmt ísraelsku lögreglunni. Þá særðust 5 ísraelskir lögregluþjónar, 3 ísraelsbúar og 40 Palestínumenn í átökunum, samkvæmt lögreglunni.
Forsætisráðherra Ísraels óskaði þjóðinni gleðilegs Jerúsalemdags og sagði: „Að flagga ísraelska fánanum í höfuðborg Ísraels er sjálfsagt. Ég bið alla um að fagna á ábyrgan og virðingarfullan hátt.“
Ísraelskir mótmælendur urðuðu yfir palestínska fréttamenn á svæðinu. Þeir kölluðu þá „hórur“ og „hunda.“ „Þetta er okkar land!“ kölluðu einnig margir til þeirra.
Hamas, samtök íslamískra harðlínumanna sem er einnig stærsti flokkurinn á palestínska þinginu, varar við ofbeldisfullum viðbrögðum og segjast ætla að svara fyrir þetta „á rétta tímapunktinum.“
Í fyrra eftir þessa árlegu skrúðgöngu skaut Hamas eldflaugum á Jerúsalem sem olli 11 daga átökum við Ísrael þar sem fjöldi lét lífið.