Þáttastjórnendur This Morning, Holly Willoughby og Philip Schofield áttu erfitt með sig þegar maður sem vinnur við að búa til gervilimi í Hollywood mætti í þáttinn og sýndi þeim hvernig hann býr til gervityppi fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti.
Matthew Mungel hefur starfað við að útbúa gervilimi í næstum 40 ár. Hann hefur unnið Óskarsverðlaun fyrir vinnu sína, þá fyrir kvikmyndina Dracula, en hann útskýrði fyrir þáttastjórnendum að nýlega hafi leikarar í auknum mæli kosið að bera gervityppi yfir raunverulegum getnaðarlimum sínum, annað hvort því þeim finnst óþægilegt að sýna sína eigin eða því þeir vilja virðast stærri.
Dæmi um leikara sem Mungel hefur unnið með eru Chris Hemsworth og Will Ferrel. Þegar hann vann með Hemsworth þurfti Mungel að búa til mjgö stóran getnaðarlim til að passa við persónu Hemsworths og húmorsins í kvikmyndinni Vacation.
Athugasemdin sem Schofield kom svo með varð til þess að Willoughby átti erfitt með að halda aftur að hlátrinum. Hann sagði að ef hann ætti sinn eigin gervi-getnaðarlim þá vildi hann „almennilega slöngu“.
Mungel tók þó undir með Schofield og sagði að flestir leikarar vildu „stærri slöngu“ og sagði að eftir að Hemsworth kláraði framleiðslu myndarinnar Vacation þá hafi framleiðsluteymi myndarinnar gefið honum gerviliminn sem hann svo hengdi á vegg við hlið hamarsins sem hann notaði í hlutverki sínu sem þrumuguðinn Þór.
„Svo hann er með báða hamrana sína saman,“ sagði Mungel í gríni.
Mungel var óspar á typpa-grínið er hann útskýrði hvernig hann býr til limina með silíkoni sem hann mótar í form lims eða eistna.
Not sure how much we can say without getting flagged, so just watch the clip 😅🍆 pic.twitter.com/FmxayLAvJZ
— This Morning (@thismorning) May 16, 2022