Svokallað stéttarfélag innbrotsþjófa hvetur landsmenn til að veggfesta ekki sjónvarpstæki sín. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var til fjölmiðla.
„Það er allt of algengt að þegar okkar fólk mætir á vettvang til að fjarlægja sjónvarpstæki af heimilum, þá sé sjónvarpið fast við vegg. Þetta eykur fyrirhöfn fyrir okkar fólk sem vinnur þegar undir miklu álagi og oft í tímaþröng.
Ef þið getið mögulega vakið athygli lesenda á þessu, þá væruð þið að aðstoða okkur heilmikið.
Með virðingu og þökk,
SI – stéttarfélag innbrotsþjófa“
Með tilkynningu er vísað til nýlegrar færslu á Facebook-síðu félagsins.
Stéttarfélag Innbrotsþjófa hefur einnig vakið athygli fyrir sjónvarps- og útvarpsauglýsingar sínar þar sem vakin er athygli á hinum ýmsu baráttumálum stéttarinnar. Athygli vekur einnig að í kjölfar auglýsinganna má að jafnaði heyra eða sjá auglýsingar frá fjarskiptafyrirtækinu Nova, þar sem auglýst eru snjallar lausnir við að verja heimili. Heimasíða félagsins er þar engin undantekning og gætu því ýmsir talið að hér sé sérstaklega snjöll auglýsingaherferð á ferðinni.
Heimasíða Stéttarfélags Innbrotsþjófa er einnig áhugaverð. Þar má finna til dæmis auglýst orlofshús:
„Laus um helgina. Munið orlofshúsavefinn þar sem má finna bústaði og orlofshús sem eiga að vera auð, yfirgefin og aðgengileg öllum félagsmönnum. Fyrstur kemur fyrstur fær!“
Þar kemur einnig fram að félagsgjöld megi greiða með rafmynt: „Nú getur þú greitt þín félagsgjöld með BitCoin eða Dogecoin. Nafnlaust, órekjanlegt og fullkomlega öruggt. Greiðsluseðill kominn í veski allra félagsmanna.
Að sjálfsögðu má þar einnig finna upplýsingar um baráttumál félagsins.
„Oft var þörf en nú er nauðsyn. Þegar íslenskt fyrirtæki ógnar lífsviðurværi okkar fólks með snjöllum hágæða heimakerfum er tími fyrir SI – Stéttarfélag innbrotsþjófa að láta í sér heyra.
Við berjumst gegn ódýrum hágæða heimakerfum
Við styðjum okkar félagsmenn í þýfi og starfi
Við vekjum athygli á glæpafordómum
Við viljum afglæpavæða glæpi“
Eins vill félagið lengja vinnuvikuna aftur, enda þurfi félagsmenn tíma til að vinna sín verk og því óhentugt að landsmenn séu meira heima. „Stytting vinnuvikunnar styttir okkar tíma.“
Og síðan vill félagið auðvitað afnema virðisaukaskattinn af sokkabuxunum.
Allskonar lítil smáatriði á síðunni vekja einnig kátínu. Til að mynda eru „logo“ félagsins klárlega hugmyndafræðilega stolið af Olís annars vegar og samtökum iðnaðarins hins vegar og flestar myndir með vatnsmerki frá myndabönkum sem bendir til ólöglegrar notkunar. Og að sjálfsögðu er netfang félagsins skráð ProtonMail sem býður upp á dulkóðun og er erfiðara að rekja en mörg önnur algengari netföng. Heimilisfang félagsins er skráð í dropphólf sem finna má í Lindum.
Við höfum sent frá okkur tilkynningu um meintan 'þjófnað' innbrotsþjófa. Afglæpavæðum glæpi! pic.twitter.com/28b0ZKfWey
— Stéttarfélag Innbrotsþjófa (@innbrotsthjofar) May 13, 2022
Félagið vakti einnig athygli á Twitter um helgina þegar það tók þátt í að tísta um Eurovision-keppnina undir myllumerkinu #12stig.
Veit einhver hvar Gísli marteinn býr? #12stig
— Stéttarfélag Innbrotsþjófa (@innbrotsthjofar) May 12, 2022
Getur einhver útskýrt þetta “Stéttarfélag innbrotsþjófa” fyrir mér?
— Tinna Andersson (@TinnAndersson) May 14, 2022
Stéttafélag innbrotsþjófa 😂
— Arnar Njarðarson (@Tuttuguog3) May 14, 2022
Nennir einhver að útskýra þetta “stéttarfélag innbrotsþjófa” dæmi fyrir mér wtf #12stig
— Egill Sigurðarson (@egillsig) May 14, 2022
Auglýsingin um stéttarfélög innbrotsþjófa var algjörlega málið. Gerði kvöldið þess virði.. með fylgjandi er mynd af einum kynna kvöldsins #12stig pic.twitter.com/0gb5sN1nuZ
— Inga Margrét (@IngaMargrt1) May 12, 2022