Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) skýrir frá þessu. Segir hugveitan að þetta megi rekja til valdabaráttu milli einstaklinga úr röðum Rússa og stuðningsmanna þeirra.
Í nýjustu skýrslu hugveitunar um gang stríðsins kemur fram að þekktur samstarfsmaður Rússa í Zaporizhia hafi sakað héraðsstjórann, sem Rússar hafa sett yfir svæðið, um að hafa stolið 10.000 rúblum sem samstarfsmaðurinn átti að fá.
Petro Andryshchenko, ráðgjafi borgarstjórans í Maríupól, segir að sögn ISW að ættingjar manna, sem Rússar hafa kallað til herþjónustu í Donetsk, sem aðskilnaðarsinnar og Rússar hafa haft á valdi sínu árum saman, hafi staðið fyrir stórum mótmælum gegn herkvaðningunni.
ISW tekur fram að hugveitan geti ekki fengið þessar upplýsingar staðfestar hjá óháðum heimildarmönnum en segir að þessar sögur bendi til að skipulagsleysi ríki á herteknu svæðunum og að staðan fari sífellt versnandi vegna mikils mannfalls rússneska hersins.