U16 karla tapaði 1-2 gegn Írlandi í lokaleik sínum á UEFA Devlopment Tournament, en leikið var í Svíþjóð.
Galdur Guðmundsson skoraði mark Íslands í leiknum.
Liðið vann því tvo leiki á mótinu, gegn Svíþjóð og Sviss, en tapaði gegn Írlandi. Þrátt fyrir tap í dag endar Ísland í efsta sæti mótsins.