Á Íslandi er ótrúleg gróska meðal smáframleiðenda sem hafa þróað nýjar vörur á matvörumarkað en á sama tíma er mun erfiðara að koma henni á markað. Fæstir smáframleiðendur hafa fjárhagslega burði til þess að standa í kostnaðarsamri markaðsstarfsemi og fá hillupláss í verslunum sem hart er barist um. Matvöruverslanir hér á landi hafa þó verið iðnar á þessum vettvangi og gert smáframleiðendum hátt undir höfði með því að kynna vörur þeirra á einn eða annan hátt. Þessa dagana stendur Hagkaup fyrir sérstökum matvörumarkaði sem hófst í gær til að auka sýnileika íslenskrar smáframleiðslu undir yfirskriftinni „Matarmarkaður íslenskra smáframleiðenda“ dagana 12-22 maí.
Hagkaup hefur í gegnum árin unnið markvisst að því að auka samstarfið með íslenskum frumkvöðlum sem eru að taka sín fyrstu skref á innlendum matvælamarkaði. Margir þessara frumkvöðla hafa náð góðum árangri og eru í dag með vel þekktar vörur á markaði sem er einkar ánægjulegt.
“Við leggjum mikla áherslu á að reyna að virkja og auka innlenda framleiðslu og er matarmarkaðurinn liður í því. Það er einstaklega ánægjulegt hversu vel framleiðendur hafa tekið í hugmyndina, en þeir verða um 30 talsins á markaðnum. Úrvalið verður ekki bara viðamikið heldur líka fjölbreytt, en þar má til dæmis finna íslenskar pylsur, vorrúllur, geitarosta, brjóstsykur, sterkar sósur, te, bakkelsi, vítamín, ís, sinnep súkkulaði, pestó, marmelaði og svona mætti lengi telja. Það er kraftur í íslenskum matvælafrumkvöðlum og við hvetjum viðskiptavini til að kynnar sér þessar flottu innlendu vörur” segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups.
Matarmarkaður íslenskra smáframleiðenda er haldinn í Hagkaup Skeifu, Kringlu, Akureyri, Smáralind og Garðabæ frá 12. – 22. maí.
Hægt er að sjá nánar upplýsingar á heimasíðu Hagkaups.