„Ég er 22 ára gömul, og þekki ekkert annað en að Reykjavík sé stjórnað af Degi B. Eggertssyni og félögum. Borgarstjórinn hefur verið í áhrifastöðu í borginni – með örstuttum hléum – í tuttugu ár.“
Svona hefst pistill sem Birta Karen Tryggvadóttir skrifar en pistillinn birtist á Vísi. Birta er fyrrum forseti stúdentahreyfingarinnar Vöku og hún situr í 34. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Birta sóttist eftir því að verða formaður Heimdalls, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, í febrúar en Gunnar Smári Þorsteinsson, meistaranemi í lögfræði, bar sigur úr býtum í kosningunni.
Í pistlinum fer Birta yfir það hvernig tímarnir hafa breyst síðan Dagur byrjaði í borgarstjórn. „Þegar hann tók fyrst sæti sem aðalmaður í borgarstjórn árið 2002 var ég nýhætt á bleyju, og Apple hafði nýverið kynnt iPodinn til sögunnar,“ segir hún.
„Tilkynnt var á dögunum að Apple ætlaði að hætta framleiðslu á spilaranum vinsæla eftir tuttugu ára framleiðslusögu. Allt hefur víst sinn tíma. Það gildir um stjórnmálafólk, rétt eins og raftæki sem einu sinni þóttu nýmóðins.“
Birta vill fá nýja forystu í borgina og horfir þar auðvitað til sinnar flokkskonu, Hildar Björnsdóttur – oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. „Ung og öflug þriggja barna móðir sem þekkir raunveruleika ungs fólks í borginni á eigin skinni. Hún þekkir brasið sem fylgir því að vera með leikskólabörn í Reykjavík, og man eftir því hindrunarhlaupi sem húsnæðismarkaðurinn er fyrir fyrstu kaupendur,“ segir Birta um Hildi í pistlinum.
„Fyrir okkur unga fólkið er mikilvægt að eiga fyrirmyndir. Fólk sem ryður brautinu og gefur okkur beinharðar sannanir fyrir því að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Hildur stendur svo sannarlega undir því. Hún er tilbúin að taka við keflinu.“
Birta segir að ekki sé síður mikilvægt að þeir sem fyrir eru á fleti þekki sinn vitjunartíma. „Sagan af iPodinum er ágætis áminning um það. Framtíð verður einhvern tíma fortíð. Það er hollt að breyta reglulega til. Hleypa nýjum og ferskum andlitum að. Nú er tíminn kominn í Reykjavík,“ segir hún.
Þá segir hún Dag hafa sýnt „fádæma klókindi“ til að halda völdum í borginni. „Honum hefur ítrekað tekist að snúa tapaðri stöðu sér í hag og kippt inn nýjum samstarfsflokkum eftir hentugleika. Kosningarnar nú á laugardaginn snúast um nákvæmlega þetta,“ segir hún.
Að lokum segir hún að fyrir sér sé valið fyrir kosningarnar á morgun skýrt. „Sjálfstæðisflokkinn – og glæsilega unga, öfluga konu – eða enn eina útgáfuna af því sama.“