Gary Neville, sérfræðingur Sky Sports, segir að hann myndi setja peninginn sinn á Tottenham í baráttu liðsins við nágranna sína um Meistaradeildarsæti fyrir síðustu tvær umferðir ensku úrvalsdeildarinnar. Tottenham vann í gær öruggan 3-0 sigur á Arsenal og er nú aðeins einu stigi á eftir Skyttunum.
Kalt mat á þeim leikjum sem eftir eru hjá bæði liðum er það að Tottenham á auðveldara leikjaprógram fyrir höndum. Liðið mætir næst Burnley á heimavelli og svo Norwich á útivelli. Burnley er í fallbaráttu en Norwich hefur að engu að keppa og er fallið úr úrvalsdeildinni.
Arsenal á útileik gegn Newcastle United eftir og heimaleik gegn Everton. Newcastle situr í þægilegri stöðu um miðja deild á meðan að Everton er í fallbaráttu.
,,Maður myndi frekar vilja leikina sem Tottenham á eftir ef maður væri leikmaður þessara liða. Útileikurinn gegn Newcastle er eriftt verkefni fyrir Arsenal og þá sér í lagi ef Tottenham klárar verkefni sitt gegn Burnley deginum áður. Að sama skapi Everton á heimavelli í lokaumferðinni, ef Everton þarf á stigum að halda á Arsenal í vændum tvo erfiða leiki,“ segir Gary Neville í umfjöllun á Sky Sports.
Neville telur að Tottenham muni klára verkefni sitt gegn Burnley á sunnudaginn ,,og þá þarf Arsenal að vinna báða sína leiki, ég er hins vegar ekki viss um að þeir muni gera það. Leikur gærkvöldsins var mikið högg fyrir liðið. Ég gæti haft rangt fyrir mér en ég er hlutlaus á milli þessara liða. Tilfinning mín segir mér að eg ég ætti að setja peninginn minn á annað hvort liðið þá myndi ég setja hann á Tottenham.