Enska götublaðið The Sun greindi frá því í gær að frægur enskur landsliðsmaður sem einnig spilar í ensku úrvalsdeildinni hafi verið fjárkúgaður í kjölfar þess að hafa greitt fylgdardömu fyrir kynlífsþjónustu.
Hann borgaði henni 150 pund, rúmar 24 þúsund íslenskar krónur, fyrir kynlíf í apríl í fyrra. Leikmaðurinn heimsótti fylgdardömuna þó nokkrum sinnum.
Landsliðsmaðurinn hélt að ástarfundir þeirra væru algjörlega leynilegir en það sem hann vissi ekki var að hún tók hann upp, tók myndir af honum og vistaði smáskilaboð frá honum án hans vitneskju.
Þessi gögn notaði fylgdardaman svo til þess að fjárkúga hann um 30 þúsund pund, tæpar fimm milljónir íslenskra króna.
Síðasta sumar leitaði leikmaðurinn til lögreglu vegna málsins. Hann reyndist þó ekki nægilega samvinnuþýður til að hægt væri að fara með það lengra. Að sögn heimildamanna The Sun er hann afar hræddur um að nafn hans verði opinberað í tengslum við málið.