fbpx
Mánudagur 03.mars 2025
Fréttir

Læknir á Vestfjörðum ákærður fyrir ofbeldi gegn konu og börnum – Sakaður um að hóta að myrða konuna með lyfjagjöf

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 4. maí 2022 13:24

Héraðsdómur Vestfjarða er staðsettur á Ísafirði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Læknismenntaður maður á Vestfjörðum hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi og brot gegn barnaverndarlögum. Er hann sakaður um margvíslegt ofbeldi gegn eiginkonu og börnum. DV hefur ákæru í málinu undir höndum en RÚV greindi fyrst frá því.

Fyrir utan líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi er maðurinn meðal annars sakaður um að hafa hótað konunni því að hann myndi myrða hana með ofskammti á insúlíni í gegnum fjarstýrða lyfjagjöf. Hann er ennfremur sakaður um að hafa ekki komið konunni til hjálpar er hún lá fótbrotin, heldur hætt hana og sparkað í hana. Orðrétt er meintum ofbeldisbrotum hans í garð konunnar lýst þannig í ákæru:

„1. Þann […] 2014, á heimili þeirra að […] í […], hafa beitt hana líkamlegu ofbeldi þegar hún var ófrísk, með því að hrinda henni í gólfið, þrýsta hné sínu í maga hennar og grípa um háls hennar og þrengja að, með þeim afleiðingum að hún átti í erfiðleikum með að kyngja í nokkra daga og hlaut hún einnig maráverka á hálsi og á sama tíma hóta henni lífláti ef hún færi út af heimili þeirra án hans fylgdar í nokkra daga eftir atvikið.

2. Í eitt skipti í […] 2016, á heimili þeirra að […], lamið hana í andlitið með banana, sagt að hún væri lág í sykri og skipað henni að borða bananann.

3. Í eitt skipti í byrjun […] 2017, á heimili þeirra að […], beitt hana andlegu ofbeldi með því að niðurlægja hana á heimili þeirra með því að öskra á hana, banna henni að þrífa maís sem hún hafði misst á gólfið með tusku og þvinga hana til þess að borða maísinn af gólfinu á meðan hann horfði á og kallaði hana ömurlega.

4. Í eitt skipti í enda […] 2018, á heimili þeirra að […], þvingað hana til heimilisverka og neitað henni um aðstoð þegar hún var fótbrotin og kvalin. Á meðan hafi hann beitt hana andlegu og líkamlegu ofbeldi, niðurlægt hana með því gera grín að henni, hrækja á hana og sparkað í síðu hennar.

5. Í nokkur skipti frá árinu 2016 og til loka sambands þeirra 2021 hótað henni lífláti og lýst því hvernig hann myndi framkvæma það, sagt að hann myndi gefa henni of mikið insúlín með fjarstýringu sem stýrir inngjöf, með þeim afleiðingum að hún óttaðist um líf sitt, heilsu og velferð.

6. Á árunum 2016 og til loka sambands þeirra árið 2021 hótað að hann myndi lesa öll gögn um hana í sjúkraskrá með þeim afleiðingum að hún var mjög hrædd við að greina heilbrigðisstarfsfólki frá andlegu og líkamlegu ofbeldi af hans hendi.

7. Í eitt skipti þegar hún var ófrísk, sumarið 2016, beitt hana ofbeldi í kynlífsathöfn þeirra með því að bíta fast í geirvörtu hennar svo að hún öskraði af sársauka.

8. Í nokkur skipti niðurlægt hana í kynlífsathöfnum, með því að hrækja á hana, kalla hana mellu, slá hana og hæðast að frammistöðu hennar.

9. Í eitt skipti í byrjun árs 2020, að heimili þeirra að […], læst [Y] inn á baðherbergi þrátt fyrir að vita að hún var lág í sykri, hlegið að henni og farið með börnin niður á hæðina fyrir neðan, með þeim afleiðingum að hún óttaðist um líf sitt.“

Ofbeldi gegn börnum

Maðurinn er einnig sakaður um ofbeldi gegn þremur börnum sínum, meðal annars um líkamlegt ofbeldi og innilokun. Er hann sagður hafa slegið börnin á fingur þeirra í refsingarskyni, læst þau inni í herbergi og þvottaherbergi og slegið eitt þeirra með flötum lófa í höfuðið í bíl.

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ennfremur eru gerðar einkaréttarkröfur á manninn fyrir hönd konunnar og barnanna. Fyrir konuna er krafist 4 milljóna króna í miskabætur en fyrir hönd hvers barns er gerð krafa um 1,5 milljónir.

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Vestfjarða á næstunni en þinghald verður lokað.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sérfræðingur segir að svona líti áætlun Pútíns út

Sérfræðingur segir að svona líti áætlun Pútíns út
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Prófessor segir komið að „endalokum Vesturlanda og jaðarsetningu Evrópu“

Prófessor segir komið að „endalokum Vesturlanda og jaðarsetningu Evrópu“
Fréttir
Í gær

Guðrún skjálfandi eftir sigurinn nauma

Guðrún skjálfandi eftir sigurinn nauma
Fréttir
Í gær

Anna Kristín, formaður SÍA: Ekkert íslenskt auglýsingakerfi á Tik-tok – samt góð leið til að koma skilaboðum til Íslendinga

Anna Kristín, formaður SÍA: Ekkert íslenskt auglýsingakerfi á Tik-tok – samt góð leið til að koma skilaboðum til Íslendinga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alcoa varar Trump við þveröfugum áhrifum verndartolla – Gætu kostað 100 þúsund amerísk störf

Alcoa varar Trump við þveröfugum áhrifum verndartolla – Gætu kostað 100 þúsund amerísk störf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Forstjóri Byggðastofnunar svarar því hvar fólki finnst best að búa

Forstjóri Byggðastofnunar svarar því hvar fólki finnst best að búa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nanna segir notkun gervigreindarmynda í þáttaröð RÚV viðhalda ranghugmyndum – „Löngu hætt að hafa nokkur afskipti af þáttunum þegar þetta bull kom til“

Nanna segir notkun gervigreindarmynda í þáttaröð RÚV viðhalda ranghugmyndum – „Löngu hætt að hafa nokkur afskipti af þáttunum þegar þetta bull kom til“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kyrrðar- og bænastund í Víkurkirkju – „Samfélagið er í djúpri sorg“

Kyrrðar- og bænastund í Víkurkirkju – „Samfélagið er í djúpri sorg“