fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Vaxandi orðrómur í Kreml – Pútín sagður búa sig undir hið versta

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 4. maí 2022 06:03

Arftaki Pútíns gæti verið enn herskárri en hann. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðrómur er á kreiki í Moskvu um að hópur fyrrum hershöfðingja og liðsmanna leyniþjónustunnar sé að undirbúa valdarán. Þeir ætla að sögn að bola Vladímír Pútín, forseta, úr embætti og binda endi á stríðið í Úkraínu en sífellt fleiri eru sagðir telja það vera mikil mistök og ekki síst ávísun á miklar efnahagslegar hörmungar.

City A.M. skýrir frá þessu. Segir miðillinn að yfirmenn leyniþjónustunnar FSB, sem Pútín stýrði áður, séu svo ósáttir við frammistöðu rússneska hersins í Úkraínu að þeir hafi sett sig í samband við fjölda hershöfðingja og fyrrum yfirmanna í hernum.

Fram kemur að hópur, sem nefnist Siloviki, vinni hörðum höndum að því að ýta Pútín úr embætti. Í þessum hópi eru fyrrum liðsmenn FSB sem eru virkir þátttakendur í rússneskum stjórnmálum. Þeir eru sagðir starfa með fyrrum liðsmönnum GRU, KGB og FSO sem eru rússneskar leyniþjónustustofnanir.

City A.M. segir að það þyki styrkja orðróminn um yfirvofandi valdarán að mikil aukning hafi orðið í virkni á samfélagsmiðlum í Rússlandi og Austur-Evrópu síðasta sólarhringinn. Einnig eru sérfræðingar, utan Rússlands, sagðir segja að margt bendi til þess að Pútín standi frammi fyrir valdaránstilraun fljótlega. Hann er sagður „mjög áhyggjufullur“ og hafi hert öryggisgæslu í Kreml enn frekar.

Andrei Soldatov, sérfræðingur í málefnum Rússlands, sagði í samtali við The Center for European Policy Analysis að þetta skipti máli því Pútín hafi verið viðbúinn valdráni vikum saman og hafi sætt harðri gagnrýni fyrir hina „sérstöku hernaðaraðgerð“ (eins og hann kallar stríðið í Úkraínu) síðustu vikur. Hann hafi kennt um 150 liðsmönnum leyniþjónustunnar um slakt gengi rússneska hersins.

City A.M. segir að þessu til viðbótar gangi orðrómar um að heilsufari Pútín hafi hrakað mjög síðan stríðið hófst. Á nýlegum myndbandsupptökum sést að hann virðist þreyttur og pirraður. Á nýlegum fundi hans með Lukashenko, einræðisherra í Hvíta-Rússlandi, skulfu hendur hans mjög mikið og átti hann í erfiðleikum með að stöðva handskjálftann.

Það hefur ekki farið mjög leynt að samband FSB og ráðamanna í Kreml hefur versnað mjög eftir að innrásin hófst. Nokkrir liðsmenn FSB hafa verið handteknir og stungið í fangelsi, aðrir eru í stofufangelsi og enn aðrir hafa verið reknir. Allt hefur þetta verið gert að undirlagi Pútíns.

Alexey Muraviev, sérfræðingur í málefnum Rússlands, sagði í samtali við Sky News Australia að hann sé sannfærður um að valdarán sé yfirvofandi. Að hershöfðingjar og leyniþjónustumenn muni gera tilraun til að bola Pútín úr embætti. Það sé vaxandi spenna á milli Pútín og leyniþjónustunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Í gær

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Í gær

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Í gær

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Solaris fordæma ummæli Helga

Solaris fordæma ummæli Helga