Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó veðurguð eins og hann er oftast kallaður, á von á barni ásamt kærustu sinni, Alexöndru Eir Davíðsdóttur.
Ingó og Alexandra opinberuðu samband sitt í júní í fyrra með mynd sem Ingó og Alexandra birtu á Instagram. „Besta mín,“ skrifaði Ingó þegar hann birti myndina.
Greint var frá því að parið ætti von á barni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en Ingólfur er staddur þar vegna dómsmáls síns gegn Sindra Þór Sigríðarsyni.
Aðalmeðferð í málinu fer nú fram en Ingó stefndi Sindra fyrir meiðyrði vegna ummæla sem sá síðarnefndi lét falla á samfélagsmiðlum sumarið 2021. Ummælin voru látin falla í kjölfar harðra ásakana sem fjöldi kvenna lét falla á hendur Ingó fyrir kynferðisbrot.
Blaðamaður DV er staddur í réttarsal og mun flytja tíðindi af málinu þaðan í dag.
Sjá einnig: Réttarhöldin í máli Ingós gegn Sindra hafin – „Ég er búinn undir allt“