Orðið á götunni er að ekki séu allir á eitt sáttir við þá niðurstöðu sem hlutskörpust var í listaverkasamkeppninni um arftaka „Sjómannsins“ er prýddi vegg Sjávarútvegshússins frá 2015 til 2017. Hjörleifur Guttormsson, fyrrum iðnaðarráðherra, var á sínum tíma andvígur tilurð sjómannsins og varð úr nokkuð fréttamál sökum þess.
Verkið „Glitur hafsins“ vann listaverkasamkeppnina nýverið og mun prýða vegginn næstu þrjú árin.
Í umsögn um verkið er sagt: „Þarna bregður fyrir eða mótar fyrir fiski og hval, neti og öldum en allt er þetta samofið í eitt form sem umvefur sjálft sig og skapar eitthvað nýtt og óráðið. Formið er á hreyfingu, virðist skjótast upp úr jörðinni eða hafinu í átt að himninum, í átt að framtíðinni. Á efri part myndar eru litlir speglar bróderaðir inn í myndefnið. Speglarnir munu grípa ljósið og gefa verkinu tilbreytingu, endurvarpa umhverfinu og skjóta ljósgeislum því sólin skín beint á efri part gaflsins á ákveðnum tíma dags. Ljósgeislarnir vísa beint í glitur hafsins, í glerhjúp Hörpu en einnig vonarneistana sem við leitum að til að halda áfram að þróast og þroskast.“
Sérfræðingarnir segja verkið falla vel að umhverfi sínu og hafa rómantíska skírskotun til sögu sjávarútvegs á Íslandi.
Orðið á götunni er að Hjörleifur sakni sjómannsins nú þegar.