fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Ríkislögreglustjóri harmar atvikið í dag og segir fordóma aldrei eiga rétt á sér

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. apríl 2022 21:35

Mynd/Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna gagnrýni á aðgerðir í dag þar sem 16 ára drengur var tekinn í misgripum fyrir strokufanga, en drengirnir áttu það sameiginlegt að vera dökkir á hörund. Kemur fram í yfirlýsingu að lögreglu hafi borist ábending um að strokufanginn umræddi hafi verið staddur í tilteknum strætisvagn en þegar för vagnsins var stöðvuð hafi komið á daginn að ekki var um sama einstakling að ræða.

„Lögregla leitar nú ungs manns sem tilheyrir minnihlutahópi á Íslandi, en hann strauk frá lögreglu og er talinn hættulegur. Í dag var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til aðstoðar við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu þar sem ábending hafði borist um að sá eftirlýsti væri í strætisvagni í Reykjavík. För vagnsins var stöðvuð en þegar sérsveitarmenn fóru inn í vagninn þá sáu þeir strax að ekki var um að ræða einstaklinginn sem var verið að leita að og yfirgáfu þeir því vagninn.“

Segir í yfirlýsingu að móðir umrædds drengs hafi haft samband við ríkislögreglustjóra og úr því samtali hafi komið fram mikilvægar áherslur sem ríkislögreglustjóri ætli að bregðast við.

„Móðir drengsins hafði samband við ríkislögreglustjóra í kjölfarið og lýsti áhyggjum af þeirri stöðu sem komin væri upp, þar sem ungmenni í minnihlutahópi óttist að vera tekin í misgripum vegna útlits. Í samtalinu komu fram mikilvægar áherslur sem ríkislögreglustjóri ætlar að bregðast við, þ.m.t. samtal við samfélagið um fordóma.“

Ríkislögreglustjóra þyki leitt að ungi drengurinn hafi orðið hluti af aðgerðum lögreglu án þess að hafa unnið sér neitt til saka. Hvetur ríkislögreglustjóri til varkárni í samskiptum um málið sem og önnur mál sem tengist minnihlutahópum. Fordómar eigi aldrei rétt á sér.

„Ríkislögreglustjóra þykir leitt að drengurinn hafi í dag orðið hluti af þessum aðgerðum lögreglu en ábending barst um að hann væri sá sem var lýst eftir, sjálfur hafði drengurinn ekkert unnið sér til sakar.Þá hvetur embættið til varkárni í samskiptum um þetta mál og önnur mál sem tengjast minnihlutahópum. Fordómar eiga aldrei rétt á sér. Leit að hættulegu fólki má ekki verða til þess að minnihlutahópar í okkar samfélagi upplifi óöryggi eða ótta við að samferðafólk þeirra tilkynni það til lögreglu án tilefnis.Fordómafullar athugasemdir verða áfram fjarlægðar af miðlum lögreglunnar um málið og lokað verður fyrir frekari athugasemdir. Ábendingum sem tengjast málinu skulu eftir sem áður berast Lögreglunni í síma 112.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Harris hafi tryggt sér nægilegan fjölda kjörmanna til að hljóta útnefningu sem forsetaefni

Harris hafi tryggt sér nægilegan fjölda kjörmanna til að hljóta útnefningu sem forsetaefni
Fréttir
Í gær

Snorri vekur athygli á óvenjulegu stríði Krónunnar og Bónus – „Greinilega er Bónus í ákveðinni örvæntingu með þetta”

Snorri vekur athygli á óvenjulegu stríði Krónunnar og Bónus – „Greinilega er Bónus í ákveðinni örvæntingu með þetta”