fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Allar skerðingar til raforkukaupenda hafa nú verið afnumdar – Einum erfiðasta vetri fyrirtækisins lokið

Eyjan
Þriðjudaginn 19. apríl 2022 10:57

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Landsvirkjun hafa allar skerðingar til raforkukaupenda hafa nú verið afnumdar. Ástæðan er sú að vatnsstaðan í miðlunarlónum Landsvirkjunar fer hratt batnandi. Í ljósi þess hefur Landsvirkjun nú tilkynnt fiskimjölsverksmiðjum og fiskþurrkunum að skerðingar á afhendingu til þeirra séu afturkallaðar.

Í tilkynningunni segir að þar með ljúki einum erfiðasta vetri í vinnslukerfi Landsvirkjunar, en strax í desember þurfti fyrirtækið að grípa til takmarkana í afhendingu á rafmagni vegna lélegs vatnafars.  Nægur snjór er núna á hálendinu eftir mikla úrkomu í vetur.  Hlýindi og rigning á landinu í lok mars og nú aftur um páskana hefur skilað hluta snævarins  inn í miðlunarlónin.  Þetta er að gerast tiltölulega snemma vors.  Horfur um fyllingu miðlunarlóna er góð, en jökulbráðnun seinni hluta sumar ákvarðar hvort þau nái að fyllast alveg í haust.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan