fbpx
Fimmtudagur 24.apríl 2025
Eyjan

Niceair á Dohop

Eyjan
Þriðjudaginn 12. apríl 2022 09:08

Niceair

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flug Niceair til þriggja áfangastaða í Evrópu eru nú bókanleg í gegnum vefsíðu Dohop, vinsælustu flugleitarvélar á Íslandi. Í fyrstu verða bein flug Niceair aðgengileg á vefnum en í framtíðinni einnig tengiflug til fleiri áfangastaða í gegnum Dohop Connect, tengiþjónustu Dohop.

Tilkynnt var um hið nýja flugfélag 17. febrúar s.l. en það mun einbeita sér að því að fljúga erlendum ferðamönnum frá Bretlandi og Danmörku til Akureyrar og þjónusta jafnframt heimamarkaðinn með vikulegu flugi til Tenerife.

“Það er mikil bylting fyrir heimamarkaðinn að geta bókað sig til hundruð áfangastaða erlendis í gegnum tengivelli félagsins í Stansted og Kastrup, auk þess sem Akureyrarflugvöllur verður nú bókanlegur með beinu flugi utan úr heimi í fyrsta sinn. Akureyri er nýr áfangastaður í áætlunarflugi á Íslandi og því spennandi kostur fyrir ferðamenn, ekki síst endurkomufarþega, sem hafa heimsótt höfuðborgarsvæðið og Suðurlandið í fyrri heimsóknum, en vilja nú upplifa meira.

Við væntum mikils af því að útvíkka þennan möguleika enn frekar í samstarfi við Dohop og þeirra samstarfsaðila meðal erlendra flugfélaga, þannig að bókunar-og leitarferli fyrir okkar farþega verði enn einfaldara” segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair.

Dohop hefur þróað hugbúnað og tengimöguleika fyrir flugfélög og ferðaþjónustu í 18 ár. Nýjasta afurð félagsins er Dohop Connect sem býður flugfélögum upp á að selja tengiflug með fjölmörgum flugfélögum til hundruð áfangastaða um allan heim.

Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop: “Það er ánægjulegt að nýjasta flugfélagið skuli velja okkur til að  þróa með sér lausnir fyrir sína farþega sem ferðast um Akureyrarflugvöll.  Tengimöguleikar út frá Akureyri eru fjölmargir og verða með lausn Dohop enn aðgengilegri fyrir heimamarkaðinn. Dohop Connect lausnin er hentug fyrir lítil félög eins og Niceair, en með aðild að því útvíkkar félagið leiðakerfi sitt á einfaldan hátt.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hanna Katrín: Verðum að koma okkur upp úr þessum hjólförum

Hanna Katrín: Verðum að koma okkur upp úr þessum hjólförum
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Steinunn Ólína skrifar og segir: Leiðarvísir fyrir þjáða

Steinunn Ólína skrifar og segir: Leiðarvísir fyrir þjáða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðmundur Ingi Kristinsson: Samræmd próf eru tímaskekkja – fátækt má ekki hindra aðgang að námi

Guðmundur Ingi Kristinsson: Samræmd próf eru tímaskekkja – fátækt má ekki hindra aðgang að námi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Kaldalóns

Óttar Guðmundsson skrifar: Kaldalóns
Eyjan
Fyrir 1 viku

Varpar sprengju í nýrri bók – Obama vildi stöðva Kamala Harris

Varpar sprengju í nýrri bók – Obama vildi stöðva Kamala Harris
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvar á Ísland heima í tollastyrjöld?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvar á Ísland heima í tollastyrjöld?