fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Ed Sheeran brenndur af ásökunum um lagastuld – Tekur allt upp á myndband

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Föstudaginn 8. apríl 2022 15:16

Ed Sheeran á tónleikum hér á landi Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran segir að hann sé farinn að taka allt ferlið við tónlistarsköpun sína upp á myndband. Sheeran segir í bút úr viðtali við fréttaþáttinn Newsnight, sem sýndur verður í Bretlandi í kvöld, að hann hafi verið farinn að efast um sjálfan sig og tónlist sína eftir ásakanir um lagastuld. Hafi hann því ekki séð sér annað fært en að gjörbreyta vinnubrögðum sínum. Með upptökunum segist Sheeran vera að vernda sig gegn hugsanlegum ásökunum um lagastuld.

Íslandsvinurinn knái vísar í viðatalinu í bítilinn George Harrison sem lét hafa eftir sér að hann væri hræddur við að snerta píanó, um annarra manna nótur gæti verið að ræða. ,,Við fundum nákvæmlega fyrir því sama í stúdíóinu.” 

Sheeran segir það bestu tilfinningu í heimi að finna hugmynd að nýju lagi kvikna.  Aftur á móti hafi sú tilfinning breyst í kjölfar ásakananna og hafi hann verið farinn að draga lappirnar og velkjast í vafa um tónlist sína.  Sheeran hefur ástæðu til að vera brenndur. Hann var sýknaður af kæru um lagastuld síðastliðin miðvikudag en tónlistarmaðurinn Sami Chokri, sem gengur undir listamannsnafni Sami Switch, vildi meina að Sheeran og meðhöfundar hans hefði stolið parti af smellinum Shape of You úr lagi sínu, Oh Why. Þeir höfnuðu því alfarið. Shape of You var mest selda lag Bretlands árið 2017 og er nú mest streymda lagið á Spotify. 

Sheeran segist vera ánægður yfir að málinu sé lokið en það hafi tekið á hann og breytt allri hans sýn á tónlistarsköpun.  ,,Þetta er búinn að vera erfiður tími og taka mikinn toll af geðheilsu okkar og sköpunargáfu,” segir Sheeran í þáttabrotinu.  Sami Chokri segist aftur á móti ekki vera búinn að gefast upp í baráttu sinni við að fá Shape of You viðurkennt sem stolið að hluta. 

Árið 2017 var Sheeran einnig í eldlínunni vegna ásakana um lagastuld þegar að hann var sakaður um að hafa stolið lagi sínu, Photograph. Hann kaus að semja um þá kæru en segist alltaf hafa séð eftir því og ekki getað hlustað á lagið lengi vel. ,,Mér leið undarlega gagnvart þvi og fannst ég skítugur við að hlusta á það.” 

Sheeran segist nú geta lagt fram myndbandsupptökur af öllu ferlinu og geti fólk séð með eigin augum hvernig hann semji tónlist. ..Það er ekkert saknæmt að sjá, ekki neitt,” segir Sheeran.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Í gær

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Í gær

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Í gær

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Solaris fordæma ummæli Helga

Solaris fordæma ummæli Helga