Eins og sést þá sýnir hún hlaupandi mann. En spurningin er hvort er hann að hlaupa í áttina til þín eða frá þér?
Svar þitt segir til um hvort heili þinn er karlkyns eða kvenkyns. Svarið er sagt geta varpað ljósi á hugsanagang fólk.
Heili okkar meðtekur myndir eins og þessar á mismunandi hátt því skynjun okkar er mismunandi sem og úrvinnsla þess sem við sjáum.
Ef þú sérð manninn hlaupa í átt til þín þá þýðir það að þú ert með karlheila. Að minnsta kosti segir Fact Factories það. Það að vera með karlheila þýðir að þú reynir að leysa vandamál og komast í gegnum áskoranir lífsins með því að nota greiningarhæfileika þína og skynsemi. Þú ert fljót(ur) að læra þegar þig langar til þess. Þú beinir allri orku þinni að hlutunum þar til þú færð hugmynd um hvernig þú getur nálgast þá. En þú átt erfitt með að vera með marga hluti í gangi samtímis, þú ert sem sagt ekki góð(ur) í að „múltítaska“, þú vilt frekar einbeita þér að einum hlut í einu. Þegar þú færð hugmynd eða hefur sterka skoðun á einhverju þá ertu reiðubúin(n) til að styðja hana með sannfærandi rökum því þú hefur mikla trú á sjálfum/sjálfri þér, einbeitingu þinni og athyglisgáfu.
Ef þú sérð manninn hlaupa frá þér þá þýðir það að þú ert með kvenheila. Það bendir til þess að greiningarhæfileikar þínir og röksemdafærsla séu í toppi. Þú treystir á skilningarvit þín og flýtir þér ekki þegar kemur að ákvarðanatöku. Heili þinn starfar best þegar þú kafar ofan í eitthvað skapandi eða þegar þú ert skapandi frá grunni. Þú ert frábær í að „múltítaska“ og minni þitt er frábært. Þú getur alltaf treyst á hugboð þitt og frábær skilningarvit.