fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fókus

Myndband í dreifingu sem sýnir löðrunginn í nýju ljósi – Jada Pinkett Smith virðist hlæja

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 1. apríl 2022 08:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er myndband að fara eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla sem sýnir uppákomuna á Óskarsverðlaunahátíðinni frá öðru sjónarhorni.

Umrætt myndband sýnir þegar Will Smith gengur til baka í sæti sitt og virðist Jada Pinkett Smith hlæja.

Chris Rock var kynnir á hátíðinni og gerði grín að hári leikkonunnar Jada Pinkett Smith, eiginkonu Will Smith, en hún er með sjálfsofnæmissjúkdóm sem veldur hárlosi. Samkvæmt heimildarmanni TMZ vissi ekki Chris af heilsuvandamálum hennar.

Will rauk upp á svið, sló Chris utan undir og settist aftur í sæti sitt og öskraði á Chris. Hálftíma seinna vann hann til verðlauna sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í King Richard.

Sjá einnig: Svona voru viðbrögð gesta Óskarsins við löðrungnum – Grátandi Will Smith baðst afsökunar

Atvikið hefur verið á allra vörum undanfarna viku. Akademían er að skoða málið og gæti leikarinn verið sviptur sínum fyrstu Óskarsverðlaunum. Will Smith bað grínistann afsökunar á mánudaginn og sagðist hafa farið yfir strikið.

@justinunsworth1 #oscars #oscarserraofficial #chrisrock #willsmith #fyp #tiktok #foryoupage ♬ original sound – Justin Unsworth

Myndbandið er á dreifingu um Twitter, TikTok og Instagram. Í því má sjá Jada Pinkett Smith hlæja þegar Chris Rock segir: „Vá, Will Smith sló mig utan undir“ eftir löðrunginn.

Síðan virðist hún hreyfa hvorki legg né lið á meðan Will Smith öskrar á Chris að tala ekki um hana. Hún virðist síðan hlæja aftur þegar Chris Rock kallar þetta „ótrúlegasta kvöld í sögu sjónvarpsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórleikarinn hefur ekki notað algenga snyrtivöru í tugi ára

Stórleikarinn hefur ekki notað algenga snyrtivöru í tugi ára
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin