fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
FókusFréttir

FLOTT, Birnir, Mono Town, Anna Gréta og Bríet sigursæl á íslensku tónlistaverðlaununum 2022

Fókus
Miðvikudaginn 30. mars 2022 22:03

Söngkonan Bríet hlaut tvenn verðlaun Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hljómsveitirnar FLOTT og Mono Town, rapparinn Birnir og tónlistarkonurnar Bríet og Anna Gréta Sigurðardóttir fengu öll tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum sem veitt voru í Hörpu á miðvikudagskvöld, fyrir hið gjöfula tónlistarár 2021. Verðlaunastytturnar dreifðust annars vítt yfir sviðið og endurspeglar hversu mikla breidd íslenska tónlistarflóran býr yfir.

 

Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Silfurbergi, Hörpu og var hátíðin í beinni útsendingu á RÚV. Segja má að verðlaunahátíðin sé fyrsta stóra „partíið“ eftir erfiða mánuði heimsfaraldurs en Íslensku tónlistarverðlaunin 2020 voru haldin um miðjan mars það ár og voru síðasta partíið áður en öllu var nær lokað og læst. Í fyrra var hátíðin svo haldin án áhorfenda í sal. Mikið var um dýrðir í Hörpu þar sem veislustjórarnir Valgerður Guðnadóttir, söng- og leikkona ásamt Guðmundi Felixsyni grínara tóku á móti gestum, fóru að kostum í leik og söng og afhentu sigurvegurum kvöldsins verðlaunastyttuna góðu, Ístóninn sem hannaður er af listakonunni Ingu Elínu. Hljómsveitirnar BSÍ og FLOTT stigu á stokk, sem og Magnús Jóhann, rapparinn Birnir og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Lilja Alfreðsdóttir ráðherra menningar- og viðskipta afhenti heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna og var það píanóleikarinn Anna Guðný Guðmundsdóttir sem er heiðursverðlaunahafi ársins.

 

ANNA GUÐNÝ HLAUT VERÐSKULDUÐ HEIÐURSVERÐLAUN
Anna Guðný Guðmundsdóttir á glæstan feril að baki, lagði á sínum tíma sérstaka áherslu á kammermúsík og meðleik með söng og þar hófst farsælt samstarf hennar og söngkonunnar Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Diddú. Um langt árabil hefur Anna Guðný sinnt kennslustörfum, var píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og einnig við Menntaskólann í tónlist. Hún hefur starfað sem píanóleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands um árabil og er enn. Anna Guðný hefur víða komið fram á sínum glæsta ferli, spilað inn á um 30 hljómplötur með fjölmörgu listafólki auk þess að gefa út rómaðar einleiksplötur. Anna Guðný er og hefur verið mikilvægur og sterkur hlekkur í íslensku tónlistarlífi í fjóra áratugi – Anna er handhafi heiðursverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2022. Félagar í Sinfóníuhljómsveit Íslands heiðruðu heiðursverðlaunahafann með flutningi á köflum Holberg-svítu eftir Grieg.

BJART YFIR ÍSLENSKRI TÓNLIST

Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson afhenti björtustu vonum íslenskrar tónlistarflóru verðlaunin í ár. Bjartasta vonin í djasstónlist er gítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson, bjartasta vonin í sígildri og samtímatónlist er fiðuleikarinn Rannveig Marta Sarc og í popp, rokk, rapp/hipphopp og raftónlist var valin hljómsveitin FLOTT sem bjartasta vonin í samvinnu við hlustendur Rásar 2. Eins og áður segir var breiddin mikil á verðlaunahátíð ársins og mörg kunnugleg andlit og nöfn sem birtust á skjánum – í bland við vonarstjörnur íslensks tónlistarlífs. Meðal vinningshafa voru þau John Grant og Herdís Anna Jónasdóttir sem verðlaunuð voru fyrir song ársins, Teitur Magnússon fékk verðlaunin fyrir textagerð, píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson og trommarinn Magnús Trygvason Eliassen voru meðal flytjenda ársins og tónlistarkonurnar Emiliana Torrini og Markéta Irglová voru verðlaunaðar fyrir tónverk ársins sem var titillagið úr sýningu Þjóðleikhússins, Vertu úlfur.

Íslensku tónlistarverðlaunin eru uppskeruhátíð íslensks tónlistarfólks og eru haldin af aðildarfélögum íslenskrar tónlistar, STEF og SFH og eru verðlaunin liður í því að hampa þeirri breidd sem íslensk tónlist býr yfir og um leið að styrkja stöðu höfunda, flytjenda, framleiðenda og annarra rétthafa.

 

Það er því gleðilegt að þessi vettvangur sé til, þar sem allt fremsta tónlistarfólks landsins í öllum tegundum tónlistar er komið undir sama þak til að fagna kollegum og aðstandendum tónlistarverkefna.

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um verðlaunahafa ársins í öllum flokkum. Við óskum verðlaunahöfum sem og öllum þeim sem voru tilnefnd – innilega til hamingju!

 

 

VERÐLAUNAHAFAR ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNANNA 2022

 

POPP, ROKK, RAPP & HIPP HOPP OG RAFTÓNLIST

 

POPP – PLATA ÁRSINS

Mobile Home – GusGus

 

ROKK – PLATA ÁRSINS

Mono Town Time Vol. I – Mono Town

 

RAPP&HIPPHOPP – PLATA ÁRSINS

Bushido – Birnir

 

RAFTÓNLIST – PLATA ÁRSINS

radio vatican – sideproject

 

POPP – LAG ÁRSINS

Mér er drull – FLOTT


ROKK – LAG ÁRSINS

Vesturbæjar Beach – BSÍ

 

RAPP&HIPPHOPP – LAG ÁRSINS

Vogur – Birnir

 

RAFTÓNLIST – LAG ÁRSINS

Halda áfram – russian.girls

 

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS

Kveðja, Bríet – Útgáfutónleikar í Eldborg

 

TEXTAHÖFUNDUR ÁRSINS

Teitur Magnússon

 

LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS

Mono Town

 

SÖNGUR ÁRSINS

John William Grant

 


TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS

Bríet Ísis Elfar

 

BJARTASTA VONIN Í SAMVINNU VIÐ RÁS 2

FLOTT

 

 

SÍGILD OG SAMTÍMATÓNLIST

 

PLATA ÁRSINS

Ethereality  – Berglind María Tómasdóttir

 

TÓNVERK ÁRSINS

CATAMORPHOSIS – Anna Þorvaldsdóttir

 

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – HÁTÍÐIR

Björk Orkestral, Live from Reykjavík

 

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – TÓNLEIKAR

Óperan KOK – Þórunn Gréta Sigurðardóttir

 

SÖNGUR ÁRSINS

Herdís Anna Jónasdóttir

 

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – EINSTAKLINGAR

Víkingur Heiðar Ólafsson

 

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR

Mótettukórinn

 

BJARTASTA VONIN
Rannveig Marta Sarc

 

 

DJASS- OG BLÚSTÓNLIST

 

PLATA ÁRSINS

Nightjar in the Northern Sky – Anna Gréta

 

TÓNVERK ÁRSINS

Hlýnun – Tumi Árnason

 

LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS

Anna Gréta

 


TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – EINSTAKLINGAR

Magnús Trygvason Eliassen

 

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR

Hljómsveit Sigmars Þórs Matthíassonar

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS

Tónleikaröð á Skuggabaldri

BJARTASTA VONIN
Hróðmar Sigurðsson

 

 

ÖNNUR TÓNLIST: OPINN FLOKKUR, ÞJÓÐLAGA- OG HEIMSTÓNLIST, KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST

 

PLATA ÁRSINS – KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST

Y: The Last Man – Herdís Stefánsdóttir

 

PLATA ÁRSINS – ÞJÓÐLAGATÓNLIST

Brek – Brek

 

PLATA ÁRSINS – OPINN FLOKKUR

Mother Melancholia  – sóley

 

LAG/TÓNVERK ÁRSINS – OPINN FLOKKUR

Vertu úlfur, titillag – Emilíana Torrini, Markéta Irglová

 

TÓNLISTARMYNDBAND ÁRSINS

Ég er bara að ljúga er það ekki? – Annalísa. Leikstjórn: Annalísa Hermannsdóttir

 

PLÖTUUMSLAG ÁRSINS

Án tillits – Magnús Jóhann & Skúli Sverrisson. Hönnun: Halldór Eldjárn

 

UPPTÖKUSTJÓRN ÁRSINS
Ox – Gyða Valtýsdóttir. Upptökustjórn: Gyða Valtýsdóttir og Úlfur Hansson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum