fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Pressan

Stjórnlausir mávar hrella ferðamenn í Feneyjum – Hótelin ákváðu að grípa til sinna eigin ráða

Pressan
Mánudaginn 28. mars 2022 12:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnlausir mávar hafa haldið ítölsku ferðamannaparadísinni Feneyjum í heljargreipum.

Mávarnir láta reglur samfélagsins sem vind um vængi þjóta og hafa gerst svo ágengir að varla er hægt að neyta matar utandyra án þess að eiga á hættu að óprúttinn mávur hrifsi matinn úr höndunum á fólki, eða af disk þeirra.

Hótelin á svæðinu hafa hingað til verið ráðalaus gagnvart þessum fiðruðu glæpamönnum.

Enrico Mazzocoo, sem rekur Monaco og Grand Canal hótelið sagði í samtali við fjölmiðla að hann viti til þess að mávur hafi flogið brott með heila steik rétt eftir að þjónn lyfti lokinu af diskinum sem steikin var borin fram á.

Mávarnir hafa einnig gerst sekir um að grípa ís, bakkelsi og samlokur beint úr höndum ferðamanna sem og að brjóta og bramla glös og diska.

Eftir áralanga baráttu veitingastaða- og hótelgeirans ákváðu samtök hótelrekenda að nú væri kominn tími á nýja nálgun.

Svo nú ef þú situr fyrir utan hótel í Feneyjum og ert að njóta lífsins er ekki ólíklegt að þér verði afhend appelsínugul vatnsbyssa.

Vatnsbyssan er appelsínugul því að samkvæmt fuglasérfræðingum þykja mávum sá litur vera einstaklega viðurstyggilegur og því líklegir að halda sig frá. Því er mögulegt að halda mávunum frá þér bara með því að hafa vatnsbyssuna á borðinu fyrir framan þig.

Ef það virkar ekki, nú þá er hægt að grípa vatnsbyssuna og sprauta vatni á fuglanna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Obama snýr bakinu við Biden

Obama snýr bakinu við Biden
Pressan
Fyrir 5 dögum

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm
Pressan
Fyrir 1 viku

Ung stjarna var ekki öll þar sem hún var séð

Ung stjarna var ekki öll þar sem hún var séð
Pressan
Fyrir 1 viku

Hver myrti Sherri? – Hvar var DNA-sýnið?

Hver myrti Sherri? – Hvar var DNA-sýnið?
Pressan
Fyrir 1 viku

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 1 viku

Juno myndaði hrauntjarnir á Io

Juno myndaði hrauntjarnir á Io