Flestir eiga sérstakan atburð eða tímasetningu sem þeir geta tengt við breytingu á lífi sínu. Karlmaður sem vó 257 kíló segir að hann muni aldrei gleyma augnablikinu þegar hann áttaði sig á því að hann þyrfti að létta sig.
Bored Panda greinir frá því að það hafi verið árið 2016 þegar mikill eldur geisaði í Kanada þar sem Tony Bussey býr, sem hann áttaði sig á því að núna væri tíminn til þess að opna augun og takast á við vandamálið.
Flugvélar voru sendar á svæðið til þess að bjarga fólki frá eldinum og þegar Tony mætti á flugvöllinn var hann settur fremst í röðina.
Þegar kom að því að ferja fólkið inn í flugvélina þurftu björgunarsveitarmenn að biðja einn farþegar um að bíða vegna þess að Tony tók tvö sæti í flugvélinni.
Ég hugsaði endalaust: „Nú er komið að því, kona einhvers, eiginmaður einhvers, eða einhver fjölskyldumeðlimur þarf að bíða eftir móður sinni eða föður af því að ég er of feitur til þess að sá einstaklingur geti setið við hliðina á mér. Þetta hafði gífurleg áhrif á mig.
Um leið og Tony kom á hótelherbergið sem honum var úthlutað í björguninni hóf hann lífsstíls breytingu sína.
Hann tók húðina utan af kjúklingnum sínum og pantaði sér grænmeti í staðin fyrir franskar. Fljótlega fór Tony að hreyfa sig hægt og rólega með stuttum göngutúrum.
Tveimur árum síðar hefur Tony náð að losa sig við 147 kíló á náttúrulegan hátt.
Engin aðgerð og ekki neitt. Ég fylgist bara með því hvað ég borða og hreyfi mig. Ég fór að borða lítið af kolvetnum og mikið af próteini. Fyrir tveimur árum síðan gat ég varla gengið að bílnum mínum, hvað þá passað inn í hann en í dag er ég að skipuleggja það að hlaupa maraþon.