fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025
Fréttir

Ólafur Haukur ósáttur með ákvörðun STEF – „Þeir eru ekki glæpamenn“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 24. mars 2022 19:15

Ólafur Haukur Símonarson - Mynd/Stefán Karlsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

STEF hefur ákveðið að stöðva greiðslur til rússneskra tónhöfunda fyrir afnot af tónlist þeirra hér á landi. Ákvörðunin er tekin til að taka afstöðu gegn Rússlandi í stríðinu sem geisar nú í Úkraínu. Öllum greiðslum STEF til Rússlands verður frestað þar til Rússar hætta innrás sinni í Úkraínu.

„Auðvitað er þetta bara einn pínu­lít­ill dropi í læk­inn héðan en þetta er eitt­hvað sem við vild­um vera hluti af og þetta var ein­róma ákvörðun stjórn­ar­inn­ar,“ sagði Guðrún Björk Bjarna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri STEF, í samtali við Morgunblaðið um málið. Guðrún segir að það sé erfitt að þetta bitni á rússneskum listamönnum en að markmiðið með öllum efnahagsþvingunum sé að mynda nógu mikinn þrýsting svo það komi niður á stríðsrekstrinum.

„Þeir eru ekki glæpamenn“

Rithöfundurinn Ólafur Haukur Símonarson er ósáttur með þessa ákvörðun STEF og greinir hann frá óánægju sinni í færslu sem hann birtir á Facebook-síðu sinni. Ólafur er velkunnugur STEF þar sem hann sat lengi í stjórn samtakanna. „Ég á dálítið bágt,“ segir Ólafur í upphafi færslunnar.

„STEF, félagið mitt sem innheimtir og deilir greiðslum til höfunda fyrir afnot af tónlist bæði innanlands og erlendis hefur ákveðið að frysta þær fáeinar krónur sem rússneskir tónhöfundar eiga að fá greiddar fyrir afnot af tónlist þeirra hér á landi. Þetta er fátækt listafólk, nánast undantekningarlaust, ekki olíugargararnir sem stolið hafa gengdarlaust frá rússnesku þjóðinni í skjóli Pútíns og kóna hans.“

Ólafur veltir því fyrir sér hvort þetta sé ekki of mikið. „Eru menn ekki að fara fram úr sér; listamenn og almenningur í Rússdíá á ekki trilljón dollara listiskip, einkaþotur og húsalengjur í skrautborgarhverfum Lundúna,“ segir hann.

„Ég sat lengi í stjórn STEFs; ég er ekki viss um að ég hefði samþykkt að svifta rússneska lagahöfunda matarpeningunum – þeir eru ekki glæpamenn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erlingur segir að stórar spurningar blasi við Íslendingum

Erlingur segir að stórar spurningar blasi við Íslendingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heitir þú Jóhann, Kristófer eða Guðrún? Þá gætir þú átt inni pening

Heitir þú Jóhann, Kristófer eða Guðrún? Þá gætir þú átt inni pening
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín kemur Þorgrími til varnar og gagnrýnir Huldu – „Kona sem kallar karlmann sem tjáir sig um börn ómenntaða risaeðlu“

Þóra Kristín kemur Þorgrími til varnar og gagnrýnir Huldu – „Kona sem kallar karlmann sem tjáir sig um börn ómenntaða risaeðlu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Aukin hætta á eldgosi: Reikna með mjög stuttum fyrirvara

Aukin hætta á eldgosi: Reikna með mjög stuttum fyrirvara