Stjórn Íslandspósts tók miklum stakkaskiptum á dögunum en nánast öllum stjórnarmönnum ríkisfyrirtækisins var skipt út. Frá þessu greinir Innherji í dag.
Auður Björg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjártæknifélagsins Two Birds, mun halda sæti sínu í stjórninni en Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Gísli Sigurjón Brynjólfsson, Guðný Hrund Karlsdóttir og Baldvin Örn Ólason koma í stað þeirra sem skipt var út.
Innherji vekur athygli á því að Baldvin Örn er sonur Ingu Sæland, þingkonu og formanns Flokks fólksins. „Á veraldarvefnum finnast engar upplýsingar um menntun eða starfsreynslu hans, að undanskildri einni frétt frá árinu 2018 þar sem hann er titlaður verkefnastjóri Flokks fólksins,“ segir í fréttinni.
Baldvin Örn var á lista Flokks fólksins í þingkosningum árið 2016, hann var í 5. sæti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Á upplýsingasíðu RÚV um Baldvin fyrir kosningarnar er ekki miklar upplýsingar að finna. Hann er titlaður sem ráðgjafi en ekkert er sagt um fyrri störf eða menntun hans. Þá fylgir ekki með mynd af Baldvini eins og sjá má á skjáskotinu hér fyrir neðan.
„Ekki verður betur séð enn að frændhygli hafi ráðið miklu um þessa skipun enda er sægur af þrautreyndu fólki í atvinnulífinu sem unnt hefði verið að leita til. Þetta er þörf áminning um að eigendastefnu ríkisins sé ábótavant. Ótrúlegt en satt vantar enn lýsingu á faglegu ferli við tilnefningu einstaklinga í stjórn ríkisfyrirtækja á borð við Íslandspóst sem veltir 7,5 milljörðum króna á ári.“
Stjórnlaun hjá Íslandspósti eru 177 þúsund krónur á mánuði.