Ofurstórmeistarinn Sergey Karjakin hefur verið dæmdur í sex mánaða keppnisbann af FIDE – alþjóða skáksambandinu fyrir brot á siðareglum sambandsins. Ástæðan fyrir banninu er sú að Karjakin hefur verið ákafur stuðningsmaður ákvörðunar Rússa um að ráðast inn í Úkraínu og notað hvert tækifæri til þess að básúna þeim skoðunum sínum á samfélagsmiðlunum Twitter.
Karjakin hefur uppskorið mikla óvild skáksamfélagsins fyrir vikið. Rússland er eitt allra öflugasta skákland heims en það gildir einnig um Úkraínu. Til marks um það unnu Úkraínumenn sigur á Evrópumóti landsliða á síðasta ári en Rússar, sem voru langsigurstranglegastir, þurftu að sætta sig við sjötta sæti mótsins.
Þá þykir Karjakin vera fullkominn ómerkingur því hann var lengi vel ríkisborgari Úkraínu. Hann er fæddur í borginni Simferopol á Krímskaga árið 1990 og undir úkraínskum fána varð hann yngsti stórmeistari sögunnar og skipaði sér í hóp fremstu skákmanna heims. Það vakti svo mikið umtal þegar hann tilkynnti árið 2009 að hann ætlaði að gerast rússneskur ríkisborgari og tefla undir fána landsins í framtíðinni.
Karjakin náði hápunktinum á ferlinum þegar hann vann sér rétt til þess að skora á Magnus Carlsen um heimsmeistaratitilinn í skák árið 2016. Hann náði að halda jöfnu í einvíginu en að endingu hafði Norðmaðurinn ótrúlegi sigur í bráðabana.
Framundan er kandídatamót í skák þar sem að átta bestu skákmenn heims, fyrir utan sjálfan heimsmeistarann, tefla innbyrðis til þess að skora á Magnus Carlsen um titilinn. Mótið fer fram í júní í sumar og hafði Karjakin unnið sér rétt til þátttöku í mótinu. Í ljósi reynslu hans af slíkum slag þótti hann líklegur til afreka en bannið mun þýða að hann missir af mótinu.
Karjakin gaf út stutta yfirlýsing vegna ákvörðunar FIDE og sagði hana skammarlega og að hann iðraðist ekki gjörða sinna. Hann væri fyrst og fremst ríkisborgari Rússlands og myndi styðja sitt land, jafnvel þó að það myndi kosta hann einhver tækifæri. Hann sagðist ekki ætla að áfrýja ákvörðuninni enda myndu allir dómstólar taka hlið Evrópubúa.