Morgunblaðið spurði Pálma V. Jónsson, yfirlækni á öldrunarlækningadeild Landspítalans og prófessor í öldrunarlækningum við Háskóla Íslands, hvort óvenjulega mikið hafi verið um andlát eldra fólks að undanförnu og hvort rekja megi mörg þeirra til COVID-19.
Hann sagðist ekki vera með nákvæma tölfræði yfir þetta við höndina en sagði að svo virðist sem þessa dagana sé aukin dánartíðni en hann hafi ekki upplýsingar um dánarorsakir.
„Ég tel mikil líkindi fyrir því að kórónuveiran sé nú að verki og valdi þessari aukningu í ár. Þá er einnig nokkuð líklegt, að mínu mati, að dánartíðnin sé heldur meiri en í meðalári, þar sem sóttvarnir hafa verið miklar í tvö ár og fólk haldið sér til hlés. Nú er hins vegar dregið úr sóttvörnum almennt talað og smit í samfélaginu í hæstu hæðum,“ sagði hann meðal annars í skriflegu svari til blaðsins.