fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Pútín segir að stríðsreksturinn gangi eftir áætlun – Einn nánasti bandamaður hans hefur aðra sögu að segja

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 15. mars 2022 07:55

Lík rússneskra hermanna nærri Irpin. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vestrænar leyniþjónustustofnanir og hernaðarsérfræðingar segja að sókn rússneska hersins inn í Úkraínu hafi alls ekki gengið eins og Rússar lögðu upp með og að áætlanir hersins um skjótan sigur séu víðs fjarri því að ganga eftir. En Vladímír Pútín, forseti, og nánustu samstarfsmenn hans hafa haft aðra sögu að segja. En nú viðurkennir einn nánasti bandamaður hans að sóknin gangi ekki eins vel og til stóð.

Síðast í gær sagði Dmitrij Peskov, talsmaður Pútín, að hernaðurinn, sem Rússar kalla „sérstaka hernaðaraðgerð“, gangi eftir áætlun og að herinn muni ná öllum markmiðum sínum á tilsettum tíma og að fullu. Upplýsingar vestrænna leyniþjónustustofnana benda hins vegar til að þetta sé ekki rétt.

En nú eru aðrar raddir farnar að berast frá Kreml. Í yfirlýsingu sem var birt á heimasíðu rússneska þjóðvarðliðsins er haft eftir Viktor Zolotov, yfirmanni þjóðvarðliðsins og meðlimi í öryggisráði Pútín, að ekki gangi allt eins og áætlanir gerðu ráð fyrir: „Ég vil gjarnan segja að, já, að ekki gengur allt eins hratt og við óskum.“

Hann sagði jafnframt að úkraínskir hermenn noti óbreytta borgara sem skjöld og það geri aðgerðir Rússa erfiðari.

Viktor Zolotov. Mynd:Wikimedia Commons

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Zolotov er einn af nánustu bandamönnum Pútín. Áður en hann var gerður að yfirmanni þjóðvarðliðsins, sem samanstendur af herlögreglumönnum, var hann árum saman yfirmaður lífvarðarsveita Pútín og hann hefur því eytt mörgum klukkustundum með forsetanum.

Þetta er í fyrsta sinn sem einhver úr innsta hringnum í Kreml gefur í skyn að hernaðurinn gæti hafa gengið betur.  Þetta er því merki um að sprungur séu að koma í frásagnir valdhafa í Kreml um gang stríðsins. Hugsanlega sagði Zolotov þetta vegna óánægju innan þjóðvarðliðsins með gang stríðsins og þetta gæti opnað fyrir að fleiri fari að tjá sig um gang þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum