fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Fréttir

Refsiaðgerðirnar bíta – Rússar flýja ættjörðina

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 15. mars 2022 17:00

Lestin til Helsinki tilbúin til brottfarar í St. Pétursborg. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg þúsund Rússar hafa að undanförnu yfirgefið heimalandið af ótta við að landamærum landsins verði algjörlega lokað og vegna hinna hörðu refsiaðgerða sem Rússar eru beittir af Vesturlöndum. En það er ekki auðvelt að komast til Evrópu, fáar leiðir eru enn opnar. Ein þeirra er með lest frá St. Pétursborg til Helsinki í Finnlandi.

Uppselt hefur verið í allar ferðir síðustu daga og sú hugmynd hefur verið viðruð að fjölga lestaferðum um helming til að mæta eftirspurninni. Aðeins finnskir og rússneskir ríkisborgarar fá að ferðast með lest á milli borganna. Vagnarnir eru fullir af fólki við komuna til Helsinki en nær tómir þegar lagt er af stað aftur til St. Pétursborgar.

Fréttamaður TV2 ræddi við nokkra farþega við komuna til Helsinki og spurði út í ástæður þess að þeir væru komnir til Finnlands. Svörin voru mismunandi, sumir sögðust hafa farið vegna þess að þeir væru hræddir vegna innrásarinnar í Úkraínu. Ein þeirra er Katarina sem sagði: „Allt er óskiljanlegt, í landinu okkar eru allir hræddir.“

Aðrir sögðust hafa misst vinnuna vegna refsiaðgerðanna og vaxandi verðbólgu.

Yana Champigny, sem býr í Frakklandi, var að koma úr heimsókn hjá rússneskri fjölskyldu sinni. „Í Rússlandi dugir ellilífeyrir móður minnar nú fyrir einni verslunarferð fyrir okkur í Frakklandi,“ sagði hún.

En eitt áttu allir viðmælendurnir sameiginlegt. Þeir vildu komast frá Rússlandi.

Margir nýta sér einnig að Serbía er opin fyrir Rússa en Serbar hafa ekki gripið til neinna refsiaðgerða vegna innrásarinnar. Air Serbia hefur tvöfaldað fjölda flugferða á milli landanna.

Ef Rússarnir vilja komast áfram til ESB þurfa þeir vegabréfsáritun og einnig þurfa þeir að vera bólusettir gegn kórónuveirunni með bóluefni sem ESB viðurkennir. Rússneska spútník bóluefnið er ekki í þeim flokki. Margir fara því með rútum til Armeníu, Georgíu eða Tyrklands en í þessum löndum eru stækkandi rússneskir minnihlutahópar að sögn Al Jazeera.

The Gurdian hefur eftir Andrei Kolesnikov, hjá Carnegie Moscow Center, að það sé viðbúið að margir Rússar yfirgefi ættjörðina og að það sé aðallega „úrvalsvinnuafl“ sem það gerir, fólk sem sér enga framtíð í Rússlandi. Margir í þessum hópi eru með góða menntun og sagði Kolesnikov að lítið væri af vel menntuðu fólki í Rússlandi og að án þess geti Rússland ekki þróast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lokaði augunum og keyrði á hringtorg

Lokaði augunum og keyrði á hringtorg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök