Nökkvi Fjalar Orrason og Embla Wigum eru að slá sér upp saman samkvæmt heimildum Fókus. Bæði eru þau metnaðarfullir einstaklingar sem hika ekki við að elta drauma sína.
Nökkvi Fjalar er athafnamaður og frumkvöðull og einn stofnanda Swipe Media. Embla Wigum er ein stærsta samfélagsmiðlastjarna okkar Íslendinga, hún er með yfir 1,6 milljón fylgjendur á TikTok og tæplega hundrað þúsund fylgjendur á Instagram.
Embla er á skrá hjá Swipe Media, en fyrirtækið lýsir sér sem „Social Media Power House“. Nökkvi Fjalar og Embla fluttu til London fyrir um hálfu ári til þess að komast á stærri markað varðandi samfélagsmiðlana. Sambandið var upphaflega viðskiptalegs eðlis sem þróaðist síðan út í ástarsamband.
Nökkvi deildi á dögunum myndum frá síðasta hálfa árinu og eru nokkrar þeirra af þeim Emblu njóta lífsins í London.
Það verður gaman að fylgjast með þessu ótrúlega ofurpari blómstra saman. Fókus óskar þeim innilega til hamingju með ástina.