Söngkonan heimsfræga Christina Aguilera hefur aldrei verið feimin við að farða sig í gegnum tíðina og hefur hún verið sérstaklega þekkt fyrir langan „eyeliner“ og dökkan varalit.
Bored Panda greindi frá því að söngkonan hafi farið í myndatöku fyrir tímaritið Paper á dögunum og margir hafa sagt að söngkonan sé nánast óþekkjanleg á myndunum þar sem hún er alveg ómáluð.
Ég hef augljóslega alltaf verið manneskja sem elskar að prófa mig áfram, elska dramatík og elska að skapa sögu og karaktera í tónlistarmyndböndum mínum eða á sviði. Ég er skemmtikraftur sem kem fram og það er mér náttúrulegt. En ég er á þeim stað, tónlistarlega séð jafnvel, þar sem mér finnst virkilega frelsandi að geta tekið allar grímur niður og læra að kunna meta hver ég er og mína eigin fegurð.
segir Christina í viðtalinu í Paper.
Hvort sem söngkonan er óþekkjanleg eða ekki þá er hún í það minnsta stórglæsileg.