fbpx
Fimmtudagur 24.apríl 2025
Fréttir

Hún stendur þétt við hlið eiginmannsins – Þetta er úkraínska forsetafrúin

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 2. mars 2022 06:59

Olena Zelenska. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Olena Zelenska, eiginkona Volodymyr Zelenskyy Úkraínuforseta, stendur þétt við hlið eiginmanns síns í baráttunni gegn innrásarliði Rússa. Þau eiga tvö börn. Olena hefur látið til sín taka á samfélagsmiðlum og lýst yfir aðdáun sinni á þeim konum sem berjast nú með úkraínska hernum gegn innrásarliðinu.

Sky News segir að í færslu á Instagram hafi Olena hrósað þeim „ótrúlegu“ konum sem séu „andlit“ úkraínskrar mótspyrnu og sagði um leið að sigur muni vinnast. Hún lýsti yfir aðdáun sinni á þeim konum sem berjast nú gegn innrásarliðinu sem og konum sem fara daglega með börn sín í loftvarnarbyrgi án þess að fyllast skelfingu. Þar hafi þær ofan af fyrir börnunum til að dreifa huga þeirra frá stríðinu. Hún gleymdi heldur ekki að hrósa þeim „sem eignast börn í neðanjarðarbyrgjunum“.

Hún sagði að konurnar sjái til þess að lífið haldi áfram og að sigur muni vinnast í baráttunni við Rússa með því að leggja sitt af mörkum í verslunum, við heilsugæslu, samgöngur og á fleiri sviðum.

„Fyrir stríð (það er svo hræðileg og óvenjulegt að segja þetta) skrifaði ég eitt sinn að það séu tveimur milljónum fleiri konur í Úkraínu en karlar. Núna hefur þetta alveg nýja merkingu. Af því að þetta þýðir að mótspyrna okkar er með sérstaklega kvenlegu yfirbragði. Ég dáist að ykkur og hneigi mig fyrir ykkur, ótrúlegu félagar!“ skrifaði hún.

Úkraínsku forsetahjónin. Mynd: Getty/PRESS OFFICE OF UKRAINIAN PRESIDENCY

Olena er 44 ára og hefur dvalið í Kyiv með eiginmanni sínum síðan Rússar réðust á Úkraínu. Hann hefur sagt að hann sé efstur á dauðalista Rússa og fjölskylda hans komi þar á eftir. Það hræðir þau ekki og þau hafa staðið með þjóð sinni og hafa hafnað boði Bandaríkjanna um að þeim verði bjargað úr landi.

Þau kynntust þegar Olena stundaði arkitektanám í háskóla og hann við nám í lögfræði. En grínið átti hug hans allan og hann hætti námi og gerðist grínisti að atvinnu. Olena byrjaði að skrifa fyrir grínhópinn sem hann starfaði með og gerði hann frægan. Hún starfar nú hjá úkraínska framleiðslufyrirtækinu Studio Kvartal 95 sem framleiðir margvíslegt efni fyrir hvíta tjaldið og sjónvarp.

Þau gengu í hjónaband 2003 eftir að hafa verið par í átta ár. Þau eiga dótturina Aleksandra, sem fæddist 2004, og soninn Kiril sem fæddist 2013.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer ekki neitt í sumar
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Miklar breytingar framundan á fréttatímum RÚV

Miklar breytingar framundan á fréttatímum RÚV
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hornfirðingar ósáttir við verslun Nettó á Höfn – „Þetta var ansi sorgleg búðarferð í dag“

Hornfirðingar ósáttir við verslun Nettó á Höfn – „Þetta var ansi sorgleg búðarferð í dag“
Fréttir
Í gær

Lögregla varar við svikum – „Textinn er áhugaverður svo ekki sé meira sagt“

Lögregla varar við svikum – „Textinn er áhugaverður svo ekki sé meira sagt“
Fréttir
Í gær

Pútín lætur reyna á NATÓ við finnsku landamærin

Pútín lætur reyna á NATÓ við finnsku landamærin
Fréttir
Í gær

Guðmundur fær ekki 670 þúsund krónur endurgreiddar sem svindlarar stálu af kreditkorti hans – „Óréttlætið hefur haft betur að mínu mati“

Guðmundur fær ekki 670 þúsund krónur endurgreiddar sem svindlarar stálu af kreditkorti hans – „Óréttlætið hefur haft betur að mínu mati“
Fréttir
Í gær

Íbúar og fyrirtæki í miðborginni hvött til að plokka á laugardag

Íbúar og fyrirtæki í miðborginni hvött til að plokka á laugardag
Fréttir
Í gær

Berfætt kona í kjól hneykslaði við Gljúfrabúa – „Þetta er svo mikil óvirðing gagnvart náttúrunni og öðru fólki“

Berfætt kona í kjól hneykslaði við Gljúfrabúa – „Þetta er svo mikil óvirðing gagnvart náttúrunni og öðru fólki“
Fréttir
Í gær

Svona notuðu svikarar Netflix til að hafa rúmar 300 þúsund krónur af óvarkárum Íslendingi

Svona notuðu svikarar Netflix til að hafa rúmar 300 þúsund krónur af óvarkárum Íslendingi