Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur gefið út viðvörun til íbúa Kænugarðs um fyrirhugaða árás á stofnanir í borginni. Um er að ræða byggingu sem húsir leyniþjónustu Úkraínu (SBO) og það sem kallað er PSO miðstöðin (72nd Center for Information and Psychological Operations – PSO).
„Til að koma í veg fyrir upplýsingaárásir gegn Rússum mun Kænugarður verða fyrir hárnákvæmum vopnum,“ segir í yfirlýsingu samkvæmt rússneska miðlinum TASS. Eins er biðlað til íbúa í nágrenni þessar stofnanna að yfirgefa heimili sín.
Talið er að þarna séu Rússar að vísa til fjarskiptastöðva.
Clarissa Ward hjá CNN segir að þessi aðgerð komi ekki á óvart.
„Þetta kemur ekki á óvart því fólk hefur verið að búa sig undir aukna hörku í innrás Rússa. Þar til núna hafa flestar árásir beinst að jaðri borgarinnar. En nú virðist sem að átökin séu að færast í átt að miðborginni eins og margir hafa óttast.“
Rúmlega 60 km löng bílalest er nú komin að jaðri Kænugarðs samkvæmt gervihnattarmyndum. Rússar hafa ítrekað haldið því fram að innrás þeirra beinist ekki að óbreyttum borgurum og innviðum í landinu en samfélagsmiðlar, gervihnettir og staðsetningartæki hafa sýnt fram á annað.
Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum er áætlað að minnst 102 óbreyttir Úkraínubúar hafi látið lífið í átökunum og minnst 304 séu særðir, en talið er raunveruleg tala sé mun hærri.