fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Segir að Pútín hafi skotið sjálfan sig í fótinn

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 28. febrúar 2022 09:10

Vladimir Putin er forseti Rússlands. mynd/getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladímír Pútín skaut sjálfan sig í fótinn með því að ráðast inn í Úkraínu. Þetta segir Peter Viggo Jakobsen, einn fremsti hernaðarsérfræðingur Danmerkur og kennari við danska varnarmálaskólann.

B.T. hefur eftir honum að með því að ráðast inn í Úkraínu hafi Pútín til dæmis ýtt við Þjóðverjum sem hafa nú ákveðið að auka útgjöld sín til varnarmála mikið. Þeir ætla framvegis að eyða að lágmarki tveimur prósentum af vergri þjóðarframleiðslu í varnarmál og á þessu ári auka þeir útgjöld til varnarmála um 100 milljarða evra.

Jakobsen sagði að þetta þýði að Þýskaland verði nú svo öflugt á hernaðarsviðinu að landið geti í raun komið í veg fyrir alla drauma Pútíns um að ráðast á evrópskt NATO-ríki, það þurfi aðeins smávegis aðstoð frá Bandaríkjunum.

„Þetta er skýrt merki um að nú hafa Þjóðverjar einnig áttað sig á að Rússar eru hættulegir. Hugmyndir Pútíns um að það sé hægt að ræða við Þjóðverja af ró og yfirvegun eiga ekki lengur við,“ sagði Jakobsen.

Olafs Scholz, kanslari Þýskalands, tilkynnti um aukin framlög til varnarmála á aukafundi þýska sambandsþingsins í gær. „Pútín ætti ekki að vanmeta staðfestu okkar,“ sagði hann.

Eins og staðan er núna nema framlög Þýskalands til varnarmála 1,4% af vergri þjóðarframleiðslu en stefnt hafði verið á að þau yrðu komin í 2% á næsta áratug. En nú verður breyting á og framlögin verða 2% af vergri þjóðarframleiðslu nánast samstundis.

Þetta þýðir að Þjóðverjar munu verja meira fé til varnarmála en Rússar að sögn Jakobsen sem sagði að þetta þýði í raun að Þjóðverjar geti eins síns liðs borið sig saman við Rússa á hernaðarsviðinu.

„Þetta eru mjög skýr skilaboð til Pútíns. Maðurinn hefur ekki hugsað innrásina í Úkraínu til enda. Nú verður hann fyrir refsiaðgerðum og mikilli eflingu hersins,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan