fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Rússneska Dagnýjar vakti athygli: „Æskudraumurinn var alltaf að vera fréttaritari í Rússlandi“

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 25. febrúar 2022 18:17

Dagný Hulda Erlendsdóttir. Skjáskot/RUV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti athygli í kvöldfréttum RUV í gær þegar fréttamaðurinn Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við sendiherra Rússlands á Íslandi á móðurmáli hans, rússnesku.

Sendiherrann, Mikhail V. Noskov, sagði í viðtalinu að ekki væri um innrás Rússa á yfirráðasvæði Úkraínu að ræða heldur væru aðgerðirnar til að tryggja öryggi rússneskra borgara, bæði í Úkraínu og Rússlandi. Hann sagði Rússa ekki óttast hefndaraðgerðir og að markmiðið væri að draga úr herstyrk Úkraínu.

Dagný komst afar vel frá viðtalinu en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún talar rússnesku á RUV þar sem hún hefur nú starfað í bráðum fimm ár. Áður hefur hún rætt bæði við mótælendur við sendiraáðið og konu frá Hvíta-Rússlandi á rússnesku.

Lærði í Pétursborg

„Eftir stúdentspróf lærði ég rússnesku í Háskóla Íslands í tvö ár. Á þriðja árinu fór ég til Pétursborgar, í ríkisháskólann þar, ásamt nokkrum íslenskum nemum sem fengu smá styrk frá rússneska ríkinu til að stunda þar nám,“ segir Dagný. Hún dvaldi í Pétursborg veturinn 2000-2001 og þar var andrúmsloftið annað en á Íslandi. Mikil kreppa var þar allan tíunda áratuginn og leifar hennar enn til staðar. „Þetta var stundum  erfitt en ég hafði gott af þessu,“ segir hún.

Dagný hefur lengið verið heilluð af rússnesku. „Þetta er afskaplega fallegt tungumál. Svolítið flókið þannig að það er dálítið erfitt að læra það, en það er líka gaman. Sovétríkin voru enn við lýði þegar ég var krakki og mér fannst þetta vera lokaður en áhugaverður heimur sem mig langaði að skilja betur. Íbúar Sovétríkjanna þurftu að bíða í biðröðum eftir mat, en á sama tíma komu þaðan allir bestu skákmennirnir, bestu íþróttamennirnir og bestu rithöfundarnir.“

Ekkert meira spennandi

Og hún játar að hafa átt sér draum. „Æskudraumurinn var alltaf að vera fréttaritari í Rússlandi. Þegar ég var krakki fannst mér það vera það mest spennandi sem ég gæti gert,“ segir hún.

Það er auðvelt að tapa niður tungumálakunnáttu þegar fólk notar tungumálið ekki reglulega en Dagný hefur farið í endurmenntun í rússnesku. Árin 2018 og 2019 fór hún sitthvora vikulanga ferðina í tungumálaskóla í Rússlandi en þegar heimsfaraldurinn kom sneri hún sér að námskeiðum á netinu. „Ég fer alltaf reglulega í tíma. Það er gott og gaman að halda sér við,“ segir hún.

Þá hefur hún fengið afar góð viðbrögð við viðtalinu við sendiherra Rússa. „Ég hef fengið nokkur skilaboð frá fólki sem sá viðtalið,“ segir Dagný.

Hér má sjá viðtalið á vef RUV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum