Efsta deild karla og kvenna mun heita Besta deildin en frá þessu var greint á hófi í Bæjarbíói í hádeginu í dag.
Deildin hefur síðustu ár heitið Pepsi Max deildin en nú hefur orðið breyting á.
ÍTF, íslenskur toppfótbolti ákvað nafnið á deildinni en samið hefur verið við þrjá styrktaraðila sem verða í kringum leikina.
Um er að ræða Steypustöðina, Eitt Sett og Lengjuna.