Engar fréttir hafa borist af mannfalli og Úkraínumenn hafa ekki staðfest þessar fréttir.
Það má velta fyrir sér hvort tímasetning þessara ásakana sé tilviljun ein því Rússar hafa stefnt miklu herliði að úkraínsku landamærunum og óttast Vesturlönd að þeir ætli að ráðast á Úkraínu. Þessu hafa Rússar neitað og hafa sagt síðustu daga að nú séu þeir byrjaðir að fækka í herliði sínu við landamærin. Þetta segja bandarísk stjórnvöld að sé ekki rétt og að hið rétta sé að Rússar hafi í raun fjölgað um 7.000 hermenn í liði sínu við landamærin.
Eins og fyrr sagði hafa Rússar alla tíð neitað að hafa í hyggju að ráðast á Úkraínu en Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, hefur hins vegar ekki gefið neina skýringu á af hverju á annað hundrað þúsund hermönnum hefur verið stefnt að landamærunum.
Bandarísk stjórnvöld hafa varað við því að Rússar muni sjálfir setja á svið atburðarás til að réttlæta innrás í Úkraínu og þar á meðal gæti verið átök á þeim svæðum sem uppreisnarmenn, sem njóta stuðnings Rússa, stjórna í austurhluta Úkraínu. Tíðindi næturinnar vekja því upp spurningar um hvort nú sé komið það tilefni sem Rússar telja sig þurfa til að ráðast á Úkraínu, óháð því hvort Úkraínumenn hafi í raun skotið á svæði uppreisnarmanna eða hvort það sé bara uppspuni einn frá Rússum. Einnig er rétt að hafa í huga að í vikunni sagði Pútín að verið væri að fremja þjóðarmorð í austurhluta Úkraínu.
Úkraínumenn neita að hafa skotið á uppreisnarmenn í austurhluta landsins að sögn Reuters.