Nokkra athygli vöktu ummæli Gunnars Inga Jóhannssonar lögmanns í gær um mál fjögurra blaðamanna sem hafa fengið réttarstöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á stuldi á snjallsíma Páls Steingrímssonar, skiptstjóra hjá Samherja. Gunnar Ingi sagði við RÚV að það væri sérstakt að gefa blaðamönnum réttarstöðu sakbornings vegna skrifa um mál sem augljóslega hefðu átt erindi til almennings. Benti hann á að samkvæmt hegningarlögum sé ekki refsivert að ganga inn á friðhelgi einkalífs ef það sé gert með vísan til almannahagsmuna.
Sagðist Gunnar telja afar ólíklegt að blaðamennirnir verði ákærðir. Hann hefur áður vakið athygli sem sterkur talsmaður tjáningarfrelsis en um það leyti sem Ingólfur Þórarinsson tónlistarmaður (Ingó Veðurguð) kærði til lögreglu birtingu á 32 nafnlausum reynslusögur um meint kynferðisbrot sín sagði Gunnar að ekki væri hægt að kalla þá sem hefðu staðið að þeirri umfjöllun dómstól götunnar. Í viðtali við RÚV í fyrra sagði Gunnar um þetta: „Báðir hafa sinn rétt. Að setja fram ásakanir af þessu tagi byggist á tjáningarfrelsinu sem eru stjórnarskrárvarin réttindi. Fólk sem setur fram slíkar ásakanir er því í fullum rétti til þess að gera það.“
Netverjar hentu á lofti ummæli Gunnar í RÚV í gærkvöld og minntu á að hann er lögmaður manns sem reyndi nýlega að stöðva birtingu viðtals Vikunnar við Hödd Vilhjálmsdóttir, sem sakaði barnsföður sinn um ofbeldi. Var Vikunni hótað málsókn ef viðtalið yrði birt.
Halldór Högurður segir um þetta á Twitter í gærkvöld:
„Þessi „mæti“ lögmaður fær sviðið til að tala um að meiðyrðamáli gegn blaðmönnum sé ætlað að hafa kælingaráhrif.
Það er akkúrat taktíkin sem hann reyndi sjálfur á Vikuna og einstæða tveggja barna móður sem var að opna sig um heimilisofbeldi í blaðinu.“
Hin þekkta baráttukona, Ólöf Tara, tekur í sama streng og segir:
„Gunnar Ingi.
Þú hefur oft verið flottur þegar þú talar gegn því að þöggun sé beitt á þolendur ofbeldis. Það er bara ekki flott að hóta fjölmiðli meiðyrðarmáli sem gefur þolanda platform og rými.“
Gunnar Ingi.
Þú hefur oft verið flottur þegar þú talar gegn því að þöggun sé beitt á þolendur ofbeldis. Það er bara ekki flott að hóta fjölmiðli meiðyrðarmáli sem gefur þolanda platform og rými.— Ólöf Tara (@OlofTara) February 15, 2022