Eltihrellirinn Ari Sigurðsson hefur verið dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og stórfelld brot í nánu sambandi með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð fyrrverandi eiginkonu sinnar og barnsmóður.
Fólust brot Ara í því að á tveggja ára tímabili, 2017-2019, sendi hann á annað hundrað tölvupósta með kynferðislegum ljósmyndum af konunni til vina og kunningja konunnar en að auki voru myndirnar sendar til fjölmiðla og á fleiri staði. Þá birti hann kynferðisleg myndskeið af barnsmóður sinni á vefsíðum og sendi henni ærumeiðandi skilaboð í gegnum SMS og samskiptaforrit eins og Viber og Messenger. Þá lágu til grundvallar dómsins ærumeiðandi símtöl en konan tók sum þeirra upp.
Í dómnum kemur fram að Ari hafi kynnst konunni á netinu árið 2005 og ári síðar flutti hún frá heimalandi sínu í Asíu til Íslands. Þau hafi síðan skilið, tekið saman aftur, eignast barn og skilið aftur en í dómnum kemur fram að engu að síður hafi Ari dvalist meira og minna á heimili konunnar. Hann hefur þó einnig dvalist erlendis, meðal annars í Taílandi og Tenerife.
Dómurinn, sem var birtur í lok síðustu viku á vef Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann telur alls rúmlega sextíu blaðsíður sem helgast af umfangsmiklum brotum Ara sem eru listuð upp í 136 liðum.
Ari neitaði sök í málinu og sagði málið tengjast forsjárdeilu. Héraðsdómur féllst ekki á þau sjónarmið og taldi yfir allan vafa hafinn að Ari hefði gerst sekur um öll brotin 136 talsins. Þá var litið til þess við ákvörðun refsingarinnar hve mörg, gróf og alvarleg brotin voru.
Að mati dómsins sýndi Ari barnsmóður sinni og fyrrverandi konu fullkomið virðingarleysi og rauf við hana trúnað með grófum hætti. Myndirnar sem hann dreifði voru meðal annars myndir sem hún hafði sent honum frá heimalandi sínu þegar kynni voru að takast og í framhaldinu á fyrstu stigum sambandsins. Fullyrti hún að Ari hefði lofað að eyða myndefninu sem hefði verið tekið.
Það gerði hann ekki heldur notaði myndirnar sem vopn gegn henni síðar meir.
Í dómnum kemur fram að vítaverðar hvatir hafi legið að baki verknaði Ara og að hann ætti sér engar málsbætur. Auk fangelsisdómsins, þrjú ár og níu mánuði, var Nokia Android One-sími Ara gerður upptækur auk símkorts. Þá var honum gert að greiða barnsmóður sinni 4 milljónir króna í miskabætur.
Í mars 2019 fjallaði DV um nafnlaust ákall um hjálp gegn Ara sem birtist í fjölmennum Facebook-hópi kvenna sem nefnist: Stöndum saman – stefnumótaforrit.
„Hann heldur úti fjölmörgum grúppum og Facebook-síðum til að hrella konur, sem voru annaðhvort að deita hann í stuttan tíma eða eru tengd einhverjum í kringum þær. Hafa jafnvel bara vogað sér að segja nei við hann. Hann auglýsir þær sem vændiskonur, bendlar þær við barnaníð og almennt reynir að eyðileggja mannorð þeirra,“ sagði í ákallinu sem var til þess að fleiri konur myndu ekki lenda í höndum níðingsins.
Í umfjölluninni er greint frá því að Ari hafi sent nektarmyndir á ritstjórn DV auk Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þó sá misskilningur sé í greininni að um hafi verið að ræða konu sem Ari hefði átt í stuttu sambandi við.
Í ágúst 2016 steig Björg Amalía Ívarsdóttir fram í viðtali við DV og lýsti sams konar háttsemi Ara. Hún hafði kynnst honum á stefnumótasíðu og sambandið gengið vel í fyrstu. Fljótlega fór að halla undan fæti og lýsti Björg Amalía margs konar andlegu ofbeldi sem hún sakaði Ara um að beita hana. Þegar sambandinu lauk fór hann að áreita Björgu Amalíu með ýmsum hætti, meðal annars dreifa niðurlægjandi myndum og myndböndum af henni sem víðast. Þá prentaði Ari út nektarmyndir af henni auk skilaboða um að hún væri að selja sig, og dreifði myndunum í póstkassa í fjölbýlishúsi sem Björg Amalía var búsett í. Einnig hélt hann því fram að Björg Amalía hefði beitt hann grófu heimilisofbeldi.