Rakel Ósk, íslensk fyrirsæta búsett í Danmörku vann keppni á vegum Ekstra Bladet þar sem hún var vallin „síða 9“ stelpan í októbermánuði. Hún er nú að keppa um titilinn „stúlka ársins.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún kemst í aðalkeppnina. Í samtali við dv.is á síðasta ári sagði Rakel:
„Já ég er ungfrú október í ár og var ungfrú nóvember í fyrra. Þá komst ég líka í aðalkeppnina og var í efstu fimm sætunum. Ég vona að ég fari alla leið í ár en aðalkeppnin fer fram í janúar á næsta ári.“
Nú stendur yfir kosning á netinu og þar má gefa Rakel atkvæði, sjá hér. Þar má einnig sjá myndbandsviðtal við Rakel sem segist vera með flottustu brjóstin á Íslandi og þau séu alfarið laus við sílikon.
Í samtali við dv.is á síðasta ári var Rakel spurð hvernig fjölskyldan tæki því að hún sæti fyrir nakin.
„Vinir mínir eru mjög stoltir af mér og einnig fjölskyldan en það er lítið talað um fáklæddu myndirnar í fjölskylduboðum enda er þetta ekki „normið.“ Ég skil vel að þeim finnst þetta óþægilegt en ég kippi mér ekki upp við það. Ég er ekkert að troða myndunum framan í þau. En þeim finnst myndirnar í fötum oftast æði. Vinkonur mínar hrósa mér oft fyrir brjóstin mín. þau eru víst rosa vel mótuð. Ætli ég ekki með bestu brjóstin á íslandi?,“ spyr Rakel Ósk og hlær.Brjóst eru samt bara húð, kirtlar og fita. Margir karlmenn eru með svipað stór brjóst og ég – ekki þurfa þeir að fela þau,“ sagði Rakel Ósk og vonast til að sem flestir fylgist með keppninni nú í janúar.