Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, segir að samkvæmt grófum útreikningum geti landsmenn vænst þess að það taki upp í 1,5 – 2 mánuði að ná fram hjarðónæmi miðað við óbreyttar smittölur.
Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna sem enn stendur yfir.
Þórólfur fór yfir sviðið varðandi stöðu faraldursins en um 90% allra þeirra smita sem eru að greinast eru af völdum Omnicron-afbrigðisins. Að sama skapi sé alvarlegum veikindum að fækka en 0,2% þeirra sem smitast veikjast alvarlega. Svo virðist sem örvunarbólusetningin dragi mjög úr slíkum veikindum.
Að mati Þórólfs þá styttist í enda faraldursins. Miðað við bráðabirgðaniðurstöður Íslenskrar erfðagreiningar varðandi rannsókn á mótefni og hversu útbreitt það sé meðal landsmanna benda til þess að um 20% þeirra sem eru 40 ára og yngri hafi smitast af covid. Þórólfur telur að um 80% landsmanna þurfi að smitast til að ná hjarðónæmi og því megi búast við að það taki einn og hálfan eða allt að tvo mánuði til að ná því, eins og áður segir. Það sé því ekki langt í land þar til að faraldrinum sloti en það gæti þó breyst. „Við þurfum að vera viðbúin því að ný afbrigði geti komið upp sem geti breytt viðbrögðum stjórnvalda,“ sagði Þórólfur.
Fréttin verður uppfærð