fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Skelfilegustu spádómarnir fyrir 2022 – Nýr heimsfaraldur og stríð í Evrópu

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 3. janúar 2022 06:05

Kínverskir hermenn en Kínverjar eru ágengir við Taívan þessi misserin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðasta ár verður væntanlega ekki hátt skrifað í huga margra því heimsfaraldur kórónuveirunnar setti svo sannarlega mark sitt á árið. Margir vonast því auðvitað til að 2022 verði betra ár, miklu betra. En ef marka má spádóma sem settir hafa verið fram um það sem er fram undan þá er ekki bjart yfir. Ný kórónuveira, stríð og innrás geimvera er meðal þess sem „spámenn“ telja sig sjá.

Þetta kemur fram í umfjöllun The Mirror. Vitnað er í spádóma eftir hinn fræga franska stjörnufræðing Nostradamus og hina blindu Baba Vanga en margir telja að þau tvö hafi spáð rétt fyrir um fjöld atburða í gegnum tíðina.

Baba Vanga.

Nýr heimsfaraldur

Meðal þess sem Baba Vanga, sem lést 1996, er sögð hafa spáð fyrir um er að nýr heimsfaraldur skelli á heimsbyggðinni. Hann mun eiga upptök sín í Síberíu þar sem frosinn veira losnar úr sífreranum vegna hnattrænnar hlýnunar.  Ef þetta bætist nú við kórónuveiruna, sem nú herjar á heimsbyggðina, verður staðan örugglega ansi erfið.

Stríð

Margir hafa miklar áhyggjur af því að stríðsátök geti verið yfirvofandi. Meðal annars í Úkraínu en Rússar hafa safnað miklum herafla við úkraínsku landamærin og virðast vera að undirbúa innrás.  Það hefur styrkt marga í trú á að innrás sé yfirvofandi að rússnesk stjórnvöld eru sögð hafa samþykkt áætlanir um fjöldagrafir, en MK skýrði frá þessu nýlega, vegna fyrirhugaðrar innrásar í Úkraínu og stríðs í kjölfarið.

En það er víðar en á landamærum Rússlands og Úkraínu sem ástandið þykir ótryggt og þar ber einna hæst Taívan en Kínverjar hafa fært sig mjög upp á skaftið síðustu mánuði og hafa verið mjög ágengir í lofti og á sjó við eyjuna. Bandaríkin styðja Taívan og bandarískir hermenn eru á eyjunni og aðstoða við þjálfun hers landsins. Samband Kína og Taívan hefur ekki verið eins slæmt og það er nú, áratugum saman. Kínverjar líta á Taívan sem órjúfanlegan hluta af Kína og hafa kínverskir ráðamenn sagt að ef nauðsyn krefji verði hervaldi beitt til að ná eyjunni undir kínverska stjórn.

Taívanskar F-16 vélar. Mynd: EPA-EFE/RITCHIE B. TONGO

Í hinni frægu bók Nostradamusar, „Les Prophéties“, frá 1555 er að finna 942 spádóma um framtíðina að sögn þeirra sem telja sig geta lesið í skrif hans. Það er snúið að lesa úr spádómum hans sem byggjast á stöðu stjarnanna frekar en dagatali en „sérfræðingar“ telja sig geta lesið úr þeim að árið í ár geti verið árið sem stríð geti brotist út í Evrópu. Í spádómum Nostradamusar kemur ítrekað fyrir að ráðist verði inn í Frakkland af óvini úr austri.

Miklar náttúruhamfarir

Samkvæmt spám Baba Vanga þá munu margir öflugir jarðskjálftar ríða yfir á árinu sem og miklar flóðbylgjur. Auk þessi muni verða mikil flóð í Ástralíu og hlutum Asíu.

Á sama tíma munu margar borgir glíma við vatnsskort sem aftur mun hafa pólitískar afleiðingar og mörg ríki verða að leita nýrra leiða til vatnsöflunar.

Börnin kæla sig í miklum hita. Mynd:AFP

 

 

 

 

 

 

 

Hún er einnig sögð hafa spáð fyrir um mikla hitabylgju á Indlandi þar sem hitinn muni fara í 50 gráður og uppskera muni eyðileggjast þess vegna.

Ekki er mikið bjartara yfir ef marka má spá Nostradamusar sem er sagður hafa spáð fyrir um hlýnandi loftslag, hækkandi sjávarborð og vandræði við fæðuöflun fyrir alla.

Verðbólga

Heimsfaraldur, pólitískur óstöðugleiki og margskonar erfiðleikar hafa valdið hækkandi verðbólgu víða um heim að undanförnu. Á þessu ári megum við eiga von á skattahækkunum, hækkunum á orkuverði og færri peningum í veskinu okkar.

Nostradamus er sagður hafa spáð fyrir um verðhækkanir á nauðsynjavörum og háa verðbólgu. Hann er meira að segja sagður hafa spáð fyrir um að fólk fari að leggja sér annað fólk til munns vegna skorts á matvælum.

Innrás geimvera

Verður árið í ár, árið þar sem við fáum staðfestingu á að vitsmunaverur séu til utan jarðarinnar? Baba Vanga er sögð hafa spáð fyrir um innrás geimvera á þessu ári. Þær eiga að sögn að senda loftstein í átt að jörðinni til að leita að líf. En útkoman úr þessu verður að sögn ekki glæsilegt.

Við verðum víst bara að bíða og sjá hvort þessir spádómar og vona að þeir rætist bara alls ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin