Wanda Nara hefur enn á ný glatt fylgjendur sína á Instagram með nýrri mynd. Rúmlega 640 þúsund manns hafa nú þegar líkað við myndina sem Wanda birti í gær.
Wanda er umboðsmaður og eiginkona Mauro Icardi. Parið er afar umdeilt í knattspyrnuheiminum og víðar.
Samband Wöndu og Icardi virtist í algjöru uppnámi í haust þegar hún sakaði leikmanninn um framhjáhald. Í kjölfarið skiptust erlendir slúðurmiðlar á að fjalla um að þau væru annað hvort búin að taka saman á ný eða hætt saman aftur. Nú virðist hjónabandið í blóma.
Wanda og Icardi hafa í raun eignað sér fyrirsagnirnar allt frá upphafi sambands þeirra. Wanda fór frá Maxi Lopez, þá liðsfélaga Icardi, fyrir núverandi eiginmann sinn á sínum tíma. Sögusagnir eru um að þau hafi byrjað saman áður en sambandi Wöndu og Lopez var lokið.
Icardi er leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi.
Hér fyrir neðan má sjá myndirnar sem Wanda birti á Instagram í gær.