fbpx
Mánudagur 03.febrúar 2025
Fréttir

Kári óskar eftir liðsauka ríkisstjórnarinnar í stríðinu við Persónuvernd

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 27. desember 2021 20:14

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar Mynd:Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skrifaði opið bréf til ríkisstjórnar Íslands sem birtist á Vísi í kvöld. Þar fer hann hörðum orðum um Persónuvernd vegna úrskurðar hennar á þá leið að Íslensk erfðagreining og Landspítalinn hefðu brotið Persónuverndarlög með því að draga blóð úr COVID-19 sjúklingum á Landspítalanum og mæla í því mótefni gegn veirunni. Kári fer fram á að Ríkisstjórnin lýsi vanþóknun sinni á ákvörðun Persónuverndar og heiti því að vernda fyrirtækið meðan það leitar réttar síns.

Kári ræðir aðgerðirnar sem Persónuvernd tók fyrir og segir þær hafa verið gerðar á miklum óvissutímum, og gerðar í þeim. tilgangi til að ná betri mynd af veirunni, til þess að hjálpa til í baráttunni við faraldurinn.

Í síðustu viku, á Þorláksmessu, fékk Kári vondar fréttir. Persónuvernd úrskurðaði að Íslensk erfðagreining og Landspítalinn hefðu brotið Persónuverndarlög. Kári segir að álit nefndarinnar byggi á þeirri skoðun að markmið blóðtakanna hafi ekki verið til að hlúa að sóttvörnum „heldur að stunda vísindarannsókn að gamni sínu.“

Í pistlinum svarar Kári fyrir sig í sex liðum, en hann segir til að mynda að málið falli utan valdsviðs Persónuverndar, og að brotin hafi verið stjórnsýslulög með því að gefa Íslenskri erfðagreiningu tækifæri á að svara fyrir eða verja sig. Liðirnir sex eru eftirfarandi:

  1. Persónuvernd sem stofnun hefur mikið vald innan síns málaflokks og ekki gert ráð fyrir því að það sé auðvelt að hnekkja ákvörðunum um hennar. Henni er hins vegar ekki ætlað það verkefni að ákveða hvernig skuli staðið að sóttvörnum í landinu. Það er því furðulegt að hún skuli telja sig í aðstöðu til þess að segja sóttvarnarlækni að það sem hann telji að þjóni vörnum gegn farsóttinni sem nú gengur yfir landið geri það ekki.
  2. Það segir í lögum um vísindarannsóknir á fólki, að leiki vafi á því hvort um sé að ræða vísindarannsókn á heilbrigðissviði, sé það Vísindasiðanefndar en ekki Persónuverndar að skera úr um það.
  3. Það sem gerir afstöðu Persónuverndar kjánalegri en ella er að þegar heilbrigðiskerfið tekst á við nýjan sjúkdóm verður það oft og tíðum að beita vísindalegum aðferðum, afla gagna, setja þau í samhengi og reyna að draga af þeim ályktanir um eðli sjúkdómsins og hvernig best væri að takast á við hann; heilbrigðisþjónustan verður í eðli sínu vísindarannsókn sem skilar niðurstöðum sem nýtast heilbrigðiskerfinu í rauntíma í stað þess að það taki ár eða áratugi fyrir niðurstöður venjulegra læknisfræði-rannsókna að hafa áhrif á heilbrigðisþjónustuna.
  4. Ein af þeim röksemdum sem forstjóri Persónuverndar notaði til stuðnings þeirri skoðun að við hefðum ekki verið að sinna heilbrigðisþjónustu var að niðurstöður á mælingu mótefnanna hefðu ekki verið færðar í sjúkraskrá. Staðreyndin er sú að mælingarnar voru ekki gerðar til þess að gagnast einstaklingnum heldur samfélaginu. Það var vitað að sjúklingarnir á Landspítalanum voru smitaðir og mótefnamælingar hefðu því engu við bætt. Það var einnig töluverð hætta á því að niðurstöðurnar yrðu mistúlkaðar vegna þess að það voru ekki til staðar viðmiðunargildi.
  5. Þótt Persónuvernd sé ætlað að ákvarða hvort persónuverndarlög hafi verið brotin eða ekki, sem er í sjálfu sér frávik frá þeirri reglu að það sé dómstóla að ákvarða hvort lögbrot hafi verið framið, þá er það brot á stjórnsýslulögum að Persónuvernd hafi að engu andmælarétt þeirra sem hún segir að hafi brotið lög. Persónuvernd tók sér meira en eitt og hálft ár í frumkvæðisathugun á því sem hún ákvarðaði að væri glæpur Íslenskrar erfðagreiningar en veitti Íslenskri erfðagreiningu ekkert tækifæri til þess að verja sig.
  6. Í byrjun apríl 2020 var farsóttin búin að vera um það bil tvo mánuði í mannheimi og einn mánuð á Íslandi. Íslenskt samfélag lék á reiðiskjálfi og heilbrigðiskerfið þurfti á allri þeirri hjálp að halda sem því bauðst. Það sem sóttvarnarlæknir stóð fyrir á það sameiginlegt að því var ætlað að auðvelda þjóðinni að stemma stigu við útbreiðslu faraldurins, sumt með því að sækja nýja þekkingu sem síðan var notuð og annað með því að nýta þekkingu sem var að verða til annars staðar og enn annað með því að nýta þekkingu á öðrum en svipuðum sjúkdómum. Ekkert af því sem sóttvarnarlæknir stóð fyrir, og á það við um framlag Íslenskrar erfðagreiningar, var gert til þess eins að sækja nýja þekkingu að gamni sínu eða í öðrum annarlegum tilgangi.

Kári heldur því fram að Persónuvernd sé „út í mýri; sokkin upp undir höku.“ Hann gagnrýnir til að mynda Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar, og segir óásættanlegt þegar forsvarsmaður eins stjórnvalds tjáir sig sem slíkur um umráðasvið annars stjórnvalds sem hann vill meina að sé Vísindasiðanefnd. Þá líkir hann sérfræðingum stofnunarinnar við her sem ætli sér landvinninga.

„Það er furðulegt fyrir okkur hjá Íslenskri erfðagreiningu sem í byrjun faraldursins unnum nótt sem nýtan dag við að aðstoða sóttvarnaryfirvöld, að una þeirri ákvörðun stjórnvalds, að með því hefðum við í rauninni verið að fremja glæp. Það sem gerir þessa ákvörðun skringilegri en svo að orðum taki er að hún byggir á þeirri skoðun Persónuverndar að það sem sóttvarnarlæknir segir að hafi verið gert í hans umboði til þess að styðja við sóttvarnir hafi verið gert í allt öðrum tilgangi og sé þess vegna brot á lögum. Þarna er Persónuvernd komin langt út fyrir valdsvið sitt og út í mýri; sokkin upp undir höku. Þegar forstjóri Persónuverndar fór í viðtal við RÚV að ræða ákvörðunina tjáði hún sig mjög ákveðið og gagnrýnið um það sem hún kallaði vísindasiðfræðina að baki mótefnamælingunum. Í fyrsta lagi var ekki um vísindarannsókn að ræða heldur þjónustu við sóttvarnarátak og í öðru lagi er það óásættanlegt þegar forsvarsmaður eins stjórnvalds tjáir sig sem slíkur um umráðasvið annars stjórnvalds sem í þessu tilfelli er Vísindasiðanefnd. Undir forystu núverandi forstjóra Persónuverndar er markaleysið orðið algjört og forstjórinn ætlar sér greinilega frekari landvinninga vegna þess að hann fór fram á fjárveitingu á fjárlögum til ráðningar tíu sérfræðinga í viðbót við núverandi her stofnunarinnar.“

Í lok pistils síns segir Kári að fer Íslensk erfðagreining fari fram á að Ríkisstjórnin lýsi vanþóknun sinni á þeirri ákvörðun Persónuverndar. Ástæðan er sú að hann telur það mögulegt að Persónuvernd leiti leiða til að ákvarða hvort fyrir tækið hafi brotið frekari lög.

„Málum er nú svo háttað að Íslensk erfðagreining er enn að vinna fyrir sóttvarnaryfirvöld við að raðgreina veiruna úr öllum þeim sem greinast í landinu og á landamærum. Við sitjum hins vegar uppi með þann möguleika að Persónuvernd finni í sínu flókna sálartetri leið til þess að ákvarða sem svo að við séum með því að brjóta lög. Þess vegna fer Íslensk erfðagreining fram á að Ríkisstjórnin lýsi vanþóknun sinni á þeirri ákvörðun Persónuverndar frá 23. nóvember 2021 að Íslensk erfðagreining hafi brotið lög með mótefnamælingunum og heiti því að vernda fyrirtækið meðan það leitar réttar síns fyrir dómstólum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband